Uppsetning á innheimtukerfi banka með sambanka vefþjónustur

Uppsetning á innheimtukerfi banka með sambanka vefþjónustur

Uppsetning á innheimtukerfi banka með sambanka vefþjónustur

Uppsetning

Það þarf að hafa samband við banka fyrirtækis / einstakling og fá uppgefið 3 stafa auðkenni.

Á fyrsta flipanum „Almennt“ þarf að skilagreina kröfunúmeraseríu, ágætt að að láta hana byrja á t.d. 1000 eða 10000, þá væri fyrsta talan t.d. 999 eða 9999. Kerfið sér svo um að stofna kröfunúmer.

Viðkomandi ræður því sjálfur á hvaða númeri kröfunúmeraserían hefst.

*ATH að sumir bankar (allavega ISB) tekur ekki kröfunúmer sem eru meira en 6 tölur.

Haka þarf í „Nota sambanka vefþjónustur" og „Nota kröfupott (höfuðbók 66)". Aðrar upplýsingar eru valkvæmar, t.d. hvort nota eigi seðilgjald, eindagi kröfu á bankafrídegi o.s.frv


Á flipanum „Banki“ þarf að setja inn fyrirtækjabankann (ath að það þarf að vera samræmi á milli bankans sem er settur inn þarna og bankans sem er valinn í Almennt > Fyrirtæki > VAT/Bank). Bankanúmerið er alltaf 4 stafir (best að velja úr töflunni, þá kemur númer bankans rétt). 

Smella svo á hnappinn „Uppsetning banka notanda“ og slá þar inn notandanafnið og lykilorðið á bankanotandanum. 
Haka síðan við „Senda kröfu í bankann um leið og sölureikningur uppfærður“. Auðkenni er 3 stafa auðkenni sem þarf að nálgast hjá bankanum.
Haka þarf í að Reikna vexti". (Ef ekki er hakað í að reikna vexti þá reiknast ekki eindagi á kröfurnar) Aðrar upplýsingar eru valkvæmar, t.d. vanskilagjald.



Á flipanum „Prentun” er kröfuprentunarlýsingin IKrafa66.KDE valin. 



Svo á flipanum Bókun greiddra krafna er hægt að skilgreina hvernig kröfurnar bókast í fjárhaginn, t.d. hvort notast á við almennt fylgiskjalanúmer eða notast við sér fylgiskjalaseríu. Annað varðandi bókun er valkvætt, en mælt er með að „Setja kröfunúmer greiddrar kröfur í tilvísun“. Einnig þarf að haka í "Ekki bóka annan innheimtukostnað (innheimtuþjónustur".




Undir flipanum Skuldunautar er svo hægt að nota vinnslu til að merkja alla skuldunauta með IB (ef það hefur ekki verið gert), setja greiðsluskilmála og seðilgjald á alla skuldunauta.

Hafa ber í huga að þessi flýtileið merkir alla skuldunauta með þeim greiðslumáta, greiðsluskilmála eða seðilgjaldi sem valið er. Taka þarf tillit til þess hvort viðkomandi vilji hafa alla skuldunauta merkta eins.

Ágætt er að miða við að ef fleiri en færri sem eiga að fá kröfur er best að fara í vinnsluna „Setja IB sem greiðslumáta á alla skuldunauta“ og fara svo í einn og einn og taka úr ef hann á ekki að fá kröfuseðil, ef færri en fleiri þá borgar sig að fara inn á hvern og einn í gegnum skuldunautar>skuldunautar. Sama á við fyrir greiðsluskilmála og seðilgjald. 


Virkni


Sækja innborganir

Þegar búið er að greiða kröfurnar eru innborganir sóttar útúr bankanum og lesnar inn í dk. Undir Innheimtukerfi banka > Sækja innborganir > Skrá notandanafn og lykilorð, velja réttan banka og tímabil > F12 Staðfesta. 
Til verður dagbók í fjárhag sem þarf að bóka.


    • Related Articles

    • Uppsetning á innheimtukerfi banka með kröfuskrá

      Uppsetning á innheimtukerfi banka með kröfuskrá Uppsetning Áður en farið er í uppsetninguna þá er gott að vera búin að stofna möppu fyrir kröfuskrárnar, t.d. möppu sem heitir banki og liggur á :C-drifi ef einstaklingurinn er einn að vinna með ...
    • Senda kröfu sjálfkrafa í bankann við prentun sölureiknings

      Stofna kröfu við prentun reiknings Hægt er að láta kerfið stofna innheimtukröfu um leið og sölureikningur er uppfærður. Skilyrði Hugbúnaðarskilríki uppsett Sambanka vefþjónustur í leyfi Uppsetning og stillingar Eftirfarandi þarf að vera sett upp og ...
    • Sambanka vefþjónustur í dk – Yfirlit og uppsetning

      Leiðbeiningar um Sambanka vefþjónustur í dk Sambanka vefþjónustur er leyfisháð eining í dk og er greitt mánaðargjald fyrir hana. Sambanka vefþjónustur er vefþjónustutenging milli banka og dk hugbúnaðar, með þessari tengingu getur dk sent og sótt gögn ...
    • Bókunarskilgreiningar banka

      Bókunarskilgreiningar banka Þessar leiðbeiningar snúa að bókunarskilgreiningum sem notaðar eru við innlestur á bankahreyfingum og kreditkortahreyfingum í dk. Þegar hreyfingar eru sóttar úr banka er hægt að setja upp reglur sem sjálfvirknivæða bókun ...
    • Sækja innborganir

      Sækja innborganir Hægt er að sækja innborganir með því að lesa inn skrá eða sækja beint í bankann með sambanka vefþjónustum og rafrænum skilríkjum. Þú ferð eftir því sem á við hjá þér. Með kröfuskrá: Skuldunautar > Innheimtukerfi banka > Sækja ...