Bókunarskilgreiningar banka

Bókunarskilgreiningar banka

Bókunarskilgreiningar banka

Þessar leiðbeiningar snúa að bókunarskilgreiningum sem notaðar eru við innlestur á bankahreyfingum og kreditkortahreyfingum í dk. Þegar hreyfingar eru sóttar úr banka er hægt að setja upp reglur sem sjálfvirknivæða bókun færslna í bókhaldi.

Markmið bókunarskilgreininga er að einfalda vinnslu með því að láta kerfið sjálfkrafa greina færslur út frá ákveðnum skilyrðum (t.d. lýsingu, texta eða kennitölu) og bóka þær á réttan aðila eða bókhaldslykil. Þetta sparar tíma, minnkar líkur á villum og tryggir samræmi í bókhaldi.

Leiðbeiningarnar hér að neðan útskýra hvernig slíkar reglur eru settar upp og notaðar í daglegri vinnslu.

Bókunarskilgreiningar eru stofnaðar undir:

      Fjárhagur > Bankareikningar > Uppsetning > Bókunarskilgreining banka

Skilyrði fyrir reglu

Hægt er að búa til reglu með því að varpa frá einu af eftirfarandi:

  1. Textalykli
  2. Lýsingartexta
  3. Tilvísun (oftast kennitala)
  4. Seðilnúmeri

Mikilvægt

  • Almennt er notað eitt skilyrði fyrir hverja reglu
  • Ekki er mælt með að blanda saman mörgum skilyrðum í sömu reglu
            

Skilyrði og reglur

  • Ef textalykill er valinn sem skilyrði er best að vera ekki með önnur skilyrði valin.
  • Sama á við ef lýsingartexti eða tilvísun eru notuð sem regla – þá er almennt betra að nota ekki textalykla.
  • Ef seðilnúmer er notað þarf að slá það inn.

Val á bókun

Í hægri hluta þarf að:

  1. Velja tegund:
    • Fjárhagur
    • Skuldunautar
    • Lánardrottnar
  2. Velja síðan:
    • Kennitölu eða
    • Bókhaldslykil sem á að bóka á

„Varpa í reikning“

  • Þegar smellt er á „varpa í reikning“ birtist listi yfir:
    • skuldunauta
    • lánardrottna
    • bókhaldslykla
  • Ef valin er tegund skuldunautar/lánardrottnar sem er safnlykill:
    • birtist bókhaldslykillinn í gráa reitnum „varpa í bókhaldslykil“

Formerki upphæðar

  • Ef valið er:
    • „jákvætt“ → innborganir eru skoðaðar
    • „neikvætt“ → úttektir eru skoðaðar

Dæmi

Ef reglan er:

  • Varpa frá lýsingartexta
  • OG varpa frá formerki (jákvætt)

Þá:

  • þegar Jórunn greiðir inn á bankann
  • fer færslan á skuldunaut Jórunn

Klára regluna

  • Þegar bókunarskilgreining er tilbúin:
    • ýta á F12
    • línan verður blá og fær númer
  • Ef deildir eru notaðar:
    • muna að skrá deild

Skýring á dæminu á mynd

  • Valinn er reiturinn „lýsing“
    → nafn greiðanda/móttakanda stýrir reglunni
  • Textalykill og tilvísun voru fjarlægð
  • Greiðslan á að bókast á skuldunaut

      Þýðir:

  • Allar færslur með textanum
    „Jórunn Kristín Fjeldsted“
    bókast á
    skuldunaut Jórunn
  • Texti í fjárhagsfærslu kemur frá:
    • lýsingartexta, nema
    • eitthvað sé sérstaklega skráð í „varpa í texta“
            
    • Related Articles

    • CSV Innlestur í Bókunarskilgreiningar rafrænna reikninga

      CSV Innlestur í Bókunarskilgreiningar rafrænna reikninga Hægt er að flýta fyrir stofnun bókunarskilgreininga fyrir rafræna reikninga með því að nota CSV-innlestur. Ferlið hefst á því að fara í Óstaðfestir rafrænir reikningar og flytja færslurnar ...
    • Bókunarskilgreining rafrænna reikninga

      Bókunarskilgreining rafrænna reikninga Það eru tvær leiðir til að stýra bókun rafrænna reikninga í kerfinu. Hvaða leið á við fer fyrst og fremst eftir því hvert reikningurinn er bókaður inn (Móttökustaður). Leiðbeiningarnar skiptast í tvennt eftir ...
    • Stofna banka

      Stofna banka Ef banki er ekki til í kerfinu er hægt að stofna hann undir Almennt > Almennar töflur > Bankar > INS Ný. Hér er leiðbeiningar mynband: dk hugbúnaður | Stofna banka
    • Villa: Error in regular expression at offset xx - Sækja hreyfingar í afstemmingu

      Sækja hreyfingar í afstemmingu - Villa , Error in regular expression Ef sambærilegar villumeldingar koma upp við að sækja hreyfingar í afstemmingu þá eru óleyfileg tákn í bókunarskilgreiningu banka t.d. .? {} / Fjárhagur > Bankareikningar > ...
    • Innlestur kreditkortahreyfinga - Uppsetning, leiðbeiningar og kröfur banka

      Innlestur kreditkortahreyfinga – Uppsetning og leiðbeiningar Athugið að skilríki á korti frá Auðkenni virka ekki fyrir innlestur kreditkortahreyfinga. Hér fyrir neðan er yfirlit yfir hvaða auðkenningarleiðir hver banki krefst: Landsbankinn ...