Sambanka vefþjónustur er leyfisháð eining í dk og er greitt mánaðargjald fyrir hana.
Sambanka vefþjónustur er vefþjónustutenging milli banka og dk hugbúnaðar, með þessari tengingu getur dk sent og sótt gögn beint úr bankanum.
dk hugbúnaðarskilríki
skilríki frá Auðkenni
Með Sambanka vefþjónustum er hægt að:
sækja bankahreyfingar
senda greiðslubunka í banka
senda og sækja innheimtukröfur í banka
Farið er í:
Í flipanum Almennt er valið hvaða þjónustu á að nota.
Þegar hakað er við einn eða fleiri af ofangreindum valmöguleikum, þá bætast við nýir flipar í stillingunum.
Fara þarf í viðeigandi flipa og velja Uppsetning banka notanda.
Þar þarf að skrá:
notandanafn
lykilorð
Þetta eru sömu aðgangsupplýsingar og notaðar eru til að skrá sig inn í viðkomandi banka. Kerfið notar þessar upplýsingar í hvert sinn sem Sambanka vefþjónustan er notuð.
Við uppsetningu er hægt að velja hvort aðgangsupplýsingarnar eigi að gilda:
eingöngu fyrir þann notanda sem er að skrá þær
fyrir alla notendur fyrirtækisins
Ef valið er að aðgangsupplýsingarnar gildi fyrir alla notendur, þá geta aðrir notendur einnig unnið með viðkomandi vefþjónustu, til dæmis stofnað og sent kröfur í banka. Þeir sjá þó ekki lykilorðið.