Tillaga fyrir afturvirkar launahækkanir

Tillaga fyrir afturvirkar launahækkanir

Afturvirkar launahækkanir

Hægt er að nýta kerfið til að reikna afturvirkar launahækkanir.
Stofna þarf nýjar launatöflur og svo er hægt að nýta launadagbók til að reikna afturvirkar launahækkanir.

Meðfylgjandi leiðbeiningar sýna hvernig sú virkni er í kerfinu.

Þegar kemur að launabreytingum og greiða þarf launahækkanir afturvirkt þá eru leiðir í launakerfinu til að bregðast við því.
Byrja þarf á því að fara í Launauppsetning –> launatöflur.
Þar er farið í [F5 valmynd] og valið að fjölfalda launatöflur fyrir launabreytingar.
Velja þarf launatöflur fyrir afmörkun, hægt er að velja ákveðnar, eða hafa tómt. Þá tekur kerfið allar launatöflur.
Setja þarf inn nýja „gildir frá“ dagsetningu, en það er þá dagsetningin sem launahækkunin tekur gildi.





Næst þarf að hækka launataxta.
Það er hægt að gera það í launabreytingum eða skrifa launatöflur út í csv skrá.
Ef launatöflur eru fluttar í csv skrá er hægt að hafa afmörkun á launatöflum eða velja allar, og svo setja inn sömu gildir frá dagsetningu og var valin í fjölföldun launataflna. Að lokum þarf að vista skrána á tölvu notanda með því að velja svæði, t.d. á c-drifi notanda.





Dálkarnir í skránni eru uppsettir á þann hátt að hægt er að nýta sömu skrá fyrir innlestur aftur í launadagbók með nýjum töxtum. Passa þarf að engar formúlur séu á bakvið tölurnar áður en skjalið er lesið aftur inn.


Útreikningur fyrir afturvirka hækkun er gerð í launadagbók. Launadagbók birtist undir Launakeyrsla.
Ef það birtist ekki þá þarf að haka við að „nota launadagbók“ undir uppsetning – almennar stillingar.

Nú er komið inn í launadagbók og ný dagbók stofnuð með Insert [INS ný].

Dagbókinni er gefið heiti og svo farið í [F5 valmynd] og valið að mynda afturvirkar launahækkanir.



Forsendur eru settir inn, dagsetningar þess uppgjörstímabils sem afturvirku launahækkanirnar eiga við, afmörkun launaliða og velja svo launalið sem nota á fyrir uppbótina. Ef afmörkun launaliða er tómt þá tekur kerfið mið af öllum launaliðum sem merktir eru með tegundinni Laun í töflunni almennir launaliðir undir Launauppsetning. Hægt er að velja afmörkun launþega, virkur, óvirkur, hættur. Þegar réttar forsendur hafa verið settar inn eru 3 valmöguleikar í boði.
Það er hægt að prenta samandreginn lista yfir afturvirkar launahækkanir, prenta fullsundurliðan lista yfir útreikning og svo mynda færslur í launadagbók.

Samandreginn listi - sýnir samantekt á útreikningi launahækkana.
Fullsundurliðaður listi - sýnir hvaða forsendur kerfið er að nota til útreiknings.
Mynda færslur í launadagbók - myndar færslur í launadagbókinni.


Athugið að valdar forsendur haldast alltaf inni þó breytt sé um aðgerð, en fara þarf aftur inn í [F5 valmynd] til að breyta aðgerð. Þegar færslurnar eru komnar í launadagbókina er hægt að færa þær yfir í launakeyrslu með því að smella á [F5 valmynd] – „yfirfara“ og því næst á [F5 valmynd] „bóka“ ef dagbókin er villulaus.
Launaliður fyrir launauppbót stofnast þá á launþega með viðeigandi upphæð frá launadagbók.




    • Related Articles

    • Stofna launadagbók

      Launadagbók Launadagbók býður upp á að stofna dagbók sem getur nýst við launaútreikning. Yfirleitt eru þetta færslur sem eru myndaðar fyrir launaútreikning sjálfan eins og fyrirframgreiðslur, vöruúttektir, afturvirkar launahækkanir o.fl. Hægt er að ...
    • Bakfæra laun

      Bakfæra laun Ef mistök hafa verið gerð í launakeyrslu og nauðsynlegt reynist að bakfæra einn eða fleiri launaseðla er hægt að framkvæma það í sérstakri vinnslu. Smellt er á launaseðlar til bakfærslu, þar valið INS ný og þá er launakeyrslan valin sem ...
    • Færa vinnutíma úr verkbókhaldi yfir í laun

      Færa vinnutíma úr verkbókhaldi yfir í laun Það eru 2 atriði sem þurfa að vera skráð í kerfinu svo hægt sé að sækja vinnutíma úr verkbókhaldi yfir í laun. 1. Skrá taxta á starfsmenn í verkbókhaldinu Til þess að hægt sé að skrá tíma og akstur í dk þá ...
    • Lykilorð sett á laun

      Lykilorð launa Hægt er að setja lykilorð á laun sem þarf þá að slá inn í hvert skipti sem laun eru opnuð. Almennt > Fyrirtæki > F5 Valmynd > Lykilorð launa Setur inn lykilorð og velja Staðfesta.
    • Mynda tillögur að desember/orlofsuppbót

      Desember- og orlofsuppbót Í launadagbók er hægt að láta kerfið mynda tillögur að útreikningi fyrir desember – eða orlofsuppbót. Kerfið myndar tillögu að uppbót út frá hinum ýmsu valkostum. Mikilvægt er að hafa í huga að upphæðirnar eru alltaf ...