Það eru 2 atriði sem þurfa að vera skráð í kerfinu svo hægt sé að sækja vinnutíma úr verkbókhaldi yfir í laun.
Til þess að hægt sé að skrá tíma og akstur í dk þá þarf að skilgreina hvaða taxta starfsmaðurinn er á.
Byrja þarf á því að stofna vörur undir Birgðir - Vörur (ATH. Vara má ekki vera lagervara).
Stofna vörunúmer fyrir: Dagvinna - Yfirvinna - Akstur (km og ferð)
2. Skilgreina tengingu taxta starfsmanna við launaliði
Til þess að hægt sé að sækja tímana úr verkbókhaldinu þarf að tengja taxtana við launaliði.
Farið er í Laun - Uppsetning - Tenging við verkbókhald.

Þarna er skilgreindur dagvinnutaxti starfsmanns við launalið 101 sem er dagvinna. Sama er svo gert fyrir alla taxta.
3. Sækja vinnutíma frá verkbókhaldi
Farið er í Laun - Launakeyrsla - Skráning tíma/launa. (Það þarf að vera búið að stofna launakeyrslu áður en þetta er gert)
Ýtt er á F5 Valmynd og valið "Sækja vinnutíma frá verkbókhaldi"