Sækja innborganir sem voru ekki stofnaðar í dk

Sækja innborganir sem voru ekki stofnaðar í dk

Sækja innborganir sem voru ekki stofnaðar í dk

Mikilvægt ef verið er að nota sambanka vefþjónustu, þá þarf að taka hakið úr á meðan þið gerið þetta svo kröfunar fara ekki inn í bankann.



Þegar viðkomandi er búin að sækja innborganir og þær komnar inn í „Sóttar innborganir“ og sitja þar rauðar með stöðu bókunar „óþekkt kröfunúmer“. Næsta skref er að ýta á F5 valmynd > Velja „Stofna kröfur út frá innborgunum“ (þarf að hafa admin réttindi til að geta fengið þetta upp í valmyndinni).



Skoða þarf hver gjalddaginn á kröfunum er, hann er settur inn í forsendur í frá og til dálkinn (ekki sama dagsetning og á myndinni heldur eftir gjaldaga á kröfunum) og svo ýtt á F12 staðfesta. 



Þá kemur kerfið upp með svona niðurstöðuglugga. Niðurstaðan ætti að vera: „bjó til óuppfærða kröfu númer xxxxx“. Skoða þarf hvort upp koma einhverjar villur þá þarf bara að skoða fyrir hvað villan er, mjög líklega að skuldunautur sé þá ekki til. Þá þyrfti að stofna hann undir skuldunautum. Það getur verið að kröfur séu inni með sama númeri og þá þarf að keyra þessa vinnslu aftur og aftur þangað til að öll óþekktu kröfunúmerin eru farin. 

Þá ætti línan að vera orðin græn og staða bókunar „Óbókað".



Þá má loka þessum glugga og fara næst í „Ósendar innheimtukröfur“ Þar ættu þessar kröfur að sjást. Þá er valið F5 og „Senda allar kröfur“ (gott að hafa ekki neinar aðrar ósendar kröfur á meðan að þetta er gert). 



Þá er hægt að fara í "Skoða/prenta sendar innheimtukröfur". Þá eiga kröfurnar að vera komnar þangað og merkar sem „Send“. Við gerum ekkert þar, einungis til að staðfesta að kröfurnar séu komnar þangað inn. Næsta skref er að fara aftur í „Skoða sóttar innborganir“staða bókunar á að vera „Óbókað“ og nú á krafan að vera komin með greiðslumátann IB í línuna. Þá er farið í F5 valmynd, velur „Bóka innborganir“. Velur greiðslumátann IB og ýtir á F12 staðfesta




Þá á kerfið að koma með glugga sem segir að bókast hafi XX margar innheimtukröfur í dagbók fjárhags. Þá er komin dagbók í fjárhaginn sem heitir Innborganir frá IB sem hægt er að yfirfara, prenta og uppfæra.


    • Related Articles

    • Sækja innborganir

      Sækja innborganir Hægt er að sækja innborganir með því að lesa inn skrá eða sækja beint í bankann með sambanka vefþjónustum og rafrænum skilríkjum. Þú ferð eftir því sem á við hjá þér. Með kröfuskrá: Skuldunautar > Innheimtukerfi banka > Sækja ...
    • Uppsetning á innheimtukerfi banka með kröfuskrá

      Uppsetning á innheimtukerfi banka með kröfuskrá Uppsetning Áður en farið er í uppsetninguna þá er gott að vera búin að stofna möppu fyrir kröfuskrárnar, t.d. möppu sem heitir banki og liggur á :C-drifi ef einstaklingurinn er einn að vinna með ...
    • Uppsetning á innheimtukerfi banka með sambanka vefþjónustur

      Uppsetning á innheimtukerfi banka með sambanka vefþjónustur Uppsetning Það þarf að hafa samband við banka fyrirtækis / einstakling og fá uppgefið 3 stafa auðkenni. Á fyrsta flipanum „Almennt“ þarf að skilagreina kröfunúmeraseríu, ágætt að að láta ...
    • Sækja bankahreyfingar - Leiðbeiningar, leiðir og kröfur eftir bönkum

      Sækja bankahreyfingar Þegar bankaafstemmingarkerfið er tekið í notkun þarf fyrst að stofna þá bankareikninga sem á að stemma af. Að því loknu er hægt að sækja bankahreyfingar. Í dk er hægt að sækja bankahreyfingar á tvo vegu: Eldri leiðin (upprunaleg ...
    • Villa: Slóðin xxx er ekki til. Sjá uppsetningu fyrir innheimtukerfi.

      Hvað þýðir þessi villa? Villan Slóðin xxxx er ekki til þýðir að kerfið finnur ekki slóðina sem á að nota, eða að notandinn hefur ekki aðgang að henni. Þess vegna getur kerfið ekki lokið aðgerðinni. Af hverju gerist þetta? Þegar kröfur eru stofnaðar ...