Nýja leiðing vs. Gamla leiðin - Sækja bankahreyfingar
Sækja bankahreyfingar - Leiðbeiningar, leiðir og kröfur eftir bönkum
Sækja bankahreyfingar
Þegar bankaafstemmingarkerfið er tekið í notkun þarf fyrst að stofna þá bankareikninga sem á að stemma af. Að því loknu er hægt að sækja bankahreyfingar.
Í dk er hægt að sækja bankahreyfingar á tvo vegu:
Eldri leiðin (upprunaleg útfærsla): Fjárhagur → Bankahreyfingar
Ekki er hægt að sækja bankahreyfingar afturvirkt.
Hægt að tvíbóka bankahreyfingar.
Nýja leiðin (uppfærð og endurbætt útfærsla): Fjárhagur → Dagbók
Hægt að sækja bankahreyfingar aftur í tímann
Kerfið merkir færslur sem rauðar sem eru til í kerfinu og sleppir þeim.
Efnisyfirlit:
Stofna bankareikning
Sækja bankahreyfingar
Eldri leiðin
Verkferli
Nýja leiðin
Verkferli
Mögulegar villur
⚠️ Mikilvægt:
Ekki má nota þessar tvær leiðir til skiptis eða blanda þeim saman.
Ekki er mælt með því að sækja hreyfingar um helgar eða á mánudögum, þar sem bankar geta breytt dagsetningum færslna við endanlega bókun eftir helgi. Þetta getur valdið því að sama færsla berist aftur með annarri dagsetningu og leiði til tvíbókunar í bókhaldskerfinu.
Stofna bankareikning
Það er gert undir: Fjárhagur → Bankareikningar → Bankareikningar
Smellið á INS – Ný.
Skráið upplýsingar um bankareikninginn.
Nauðsynlegar upplýsingar
Eftirfarandi upplýsingar þarf að skrá:
Bankareikning
Banki
Höfuðbók
Kennitala
Bókhaldslykill
Flipinn „Jöfnun“
Á flipanum Jöfnun er hægt að:
Skrá upphafsstöðu reiknings
Setja upphafsdagsetningu
Sjá hvenær var síðast jafnað
Nota afstemmingarkerfið fyrir bókhaldslykla
haka við „Afstemming án bankahreyfinga“
F5 – Valmynd
Undir F5 – Valmynd er hægt að:
Skrá stöðu reiknings í lok mánaðar fyrir hvert ár
👉 Ekki er nauðsynlegt að fylla út þessar upplýsingar.
Sækja Bankahreyfingar
Áður en bankahreyfingar eru sóttar er mikilvægt að ganga úr skugga um að innborganir vegna innheimtukrafna hafi verið sóttar.
Það er gert með því að fara í: Skuldunautar → Innheimtukerfi banka → Sækja innborganir
👉 Þetta þarf að gera fyrst, þar sem þessar greiðslur berast annars einnig með bankahreyfingum.
Eldri leiðin:
Upplýsingar um gömluleiðina og hvað þarf fyrir hvern banka:
2 skref: Fyrst eru sóttar bankahreyfingar, síðan er farið í afstemmingar
Bankar og skilríki:
ArionBanki → Þarf að vera með rafræn skilríki og sambanka vefþjónustu
Íslandsbanki → Þarf hvorki skilríki né sambanka vefþjónustur
Ef valmöguleikinn Sækja hreyfingar frá vefþjónustu birtist ekki, farðu í Stillingar og taktu hakið úr Nota Sambanka vefþjónustur
Landsbanki → Þarf hvorki skilríki né sambanka vefþjónustur
Ef valmöguleikinn Sækja hreyfingar frá vefþjónustu birtist ekki, farðu í Stillingar og taktu hakið úr Nota Sambanka vefþjónustur
Hægt er að nota Sambankavefþjónustur til að sækja frá Landsbankanum en þá þarf að fara í Almennt → Umsjón → Sambankavefþjónustur, opna flipann Reikningsyfirlit og setja hak við Nota B2B þjónustur Landsbankans.
Einnig þarf að vera hakað við Nota sambankavefþjónustur í stillingum undir Fjárhagur → Bankareikningar → Uppsetning → Almennar stillingar.
Verkferlið - eldri leiðin:
1. Sækja bankahreyfingar
Fara í: Fjárhagur > Bankahreyfingar > Sækja bankahreyfingar
2. Bankahreyfingar
Fara í: Fjárhagur > Bankahreyfingar > Bankar
2. Afstemmingar
Fara í Afstemmingar
Lesa inn hreyfingar fyrir tímabilið:
F5 Valmynd > Sækja hreyfingar
Jafna:
Fara í: F5 Valmynd > Vélræn jöfnun
Setja jöfnunarskilyrði
Ýta á F12
Yfirfara og velja Uppfæra jöfnun
3. Meta niðurstöðu
👉 Ef allar færslur jafnast:
✔️ Ferlinu er lokið
👉 Ef einhverjar færslur jafnast ekki:
➡️ Halda áfram í næsta skref
4. Setja bókhaldslykla á þær færslur sem vantar að skilgreina hvað á að gera við
Fyrir færslur sem jafnast ekki:
Velja færslu
Ýta á Enter
Setja réttan bókhaldslykil
Ýta á F12
5. Bóka færslur
Fara í: F5 > Útbúa fjárhagsdagbók
Bóka dagbókina
6. Keyra afstemmingu aftur (MIKILVÆGT)
Eftir bókun þarf alltaf að:
Fara aftur í Afstemmingar
Lesa inn hreyfingar aftur
Fara í: F5 > Vélræn jöfnun
Setja jöfnunarskilyrði
Ýta á F12
Velja Uppfæra jöfnun
⚠️ Mikilvæg regla
👉 Þú þarft að sækja og jafna bankahreyfingar í hvert skipti sem þú bókar á bankareikning
Annars geta færslur setið eftir ójafnaðar eða tvíbókast!
Nýja leiðin:
Upplýsingar um nýju leiðina og hvað þarf fyrir hvern banka:
Dagbók > F5 Valmynd > Sækja bankahreyfingar og smíða dagbók
Hægt er að sækja hreyfingar aftur í tímann
Sambankavefþjónustur þurfa að vera í leyfinu fyrir alla banka
1 skref: Bankahreyfingar eru sóttar og afstemmdar í sama ferli
Bankar og skilríki:
ArionBanki → Rafræn skilríki eru nauðsynleg
Íslandsbanki → Rafræn skilríki eru nauðsynleg
Landsbanki → Rafræn skilríki eru ekki nauðsynleg
Verkferlið - nýja leiðin:
Sækja bankahreyfingar og smíða dagbók
Bankahreyfingar - Forskráning
Tilgreina hvernig færslurnar eiga að bókast í fjárhag
Stofna bókunarskilgreiningar
ef við á
Villuleita skráningu
Kerfið fer yfir færslurnar, ef engin villa finnst þá stofnar kerfið dagbók
Yfirfara dagbókina sem kerfið stofnaði
Hreyfingar eru hérna komnar í töfluna bankahreyfingar
Uppfæra dagbókina - Bóka dagbókina
Kerfið bókar dagbókina og afstemmir/jafnar færslurnar í leiðnni
Hægt að fara í Afstemmingar undir Bankahreyfingar til að sjá það
Mögulegar villur
Þegar bankahreyfingar eru sóttar í fyrsta skipti getur komið upp villa. Algengustu villurnar eru SOAP villa eða villa nr. 1. Þetta eru villur frá bankanum.
Helstu ástæður eru:
Rangt notandanafn eða lykilorð
Notandi hefur ekki næg réttindi í bankanum
Í báðum tilfellum þarf að hafa samband við bankann. Bankinn þarf að virkja réttindi notandans svo hægt sé að sækja bankahreyfingar í gegnum vefþjónustu.
Ef bankahreyfingar eru sóttar með rafrænum skilríkjum frá Auðkenni:
Þá fer innlestur alltaf í gegnum vefþjónustu
Ef villa kemur eftir að 4 stafa PIN hefur verið slegið inn, þá þarf að hafa samband við viðkomandi banka
Skilríki vantar, þá þarf að fara í Almennt > Umsjón > Rafræn skilríki og setja hak fyrir framan skilríkið sem á að nota.
Helstu orsakir tvíbókana Það getur komið upp að bankahreyfingar tvíbókist í kerfinu. Helstu orsakir þess eru tvær: 1. Hreyfingar sóttar í gegnum Bankareikninga Ef bankahreyfingar eru sóttar í gegnum eininguna Bankareikningar, þá er ekkert sem kemur í ...
Sækja bankahreyfingar: SOAP villa Ef villan "Content-Type setting: text/html - SOAP expects "text/xml" " kemur upp þegar veirð er að sækja bankahreyfingar þá er eitthvað ekki rétt í samskiptum við bankann. Þetta getur verið vegna þess að: 1. ...
Sækja bankahreyfingar - Yfirlitsheimild villa Ef eftirfarandi villumelding kemur upp við innlestur bankahreyfinga þá þarf að hafa samband við bankann og láta opna fyrir að notandinn geti sótt bankahreyfingar.
Sækja bankahreyfingar - Villa 1, Invalid session Ef eftirfarandi villumelding kemur upp við innlestur bankahreyfinga þá þarf að hafa samband við bankann. Yfirleitt er ástæðan sú að notandanafn og/eða lykilorð fyrir bankann er rangt skráð, eða ...
Ferlið við notkun bankahreyfinga 1. Lesa innheimtukröfur inn og bóka, sækja greiðslur lánardrottna og bóka Skuldunautar > Innheimtukerfi banka > Sækja innborganir 2. Sækja bankahreyfingar Fjárhagur > Bankahreyfingar > sækja bankahreyfingar 3. Fara í ...