Frítökuréttur er það þegar launafólk getur fengið orlof í stað greiðslu fyrir unna yfirvinnu. Ólíkt er hvernig þetta er útfært og í kjarasamningum geta verið ákvæði um margföldunarstuðul sem notaður er þegar frítökuréttur er nýttur.
Í Dk eru 3 möguleikar á skráningu frítökuréttar.
1. Hægt er að skrá frítökurétt í skráningu tíma/launa í valmynd.
2. Hægt er að tengja launaliði í stillingum þannig að færsla á þá er skráning frítöku.
3. Hægt er að búa til sérstaka launaliði sem eru með margfaldara.
Tveir fyrri möguleikarnir eru einfaldir og þarf að halda utan um notkun þeirra utan Dk.
Fara þarf í Laun > Launakeyrsla > Skráning
tíma/launa og velja þar launamann með því að tvísmella á viðkomandi. Þá opnast
gluggi eins og sýnt er hér fyrir neðan:
Því næst er farið í [F5
Valmynd] og valið að skrá „áunnin“ eða „nýttan“ frítökurétt. Þegar ýtt er á
„Skrá áunnin frítökurétt“ opnast lítill gluggi eins og sést hér fyrir neðan þar
sem hægt er að skrá inn þá tíma sem viðkomandi á.
Í flipanum: Laun- Orlof og frítökuréttur undir: Laun > Uppsetning > Almennar stillingar er hægt að haka við „Tengja virkni F5 skrá áunnin/nýttan frítökurétt við launalið“. Þá er hægt að auðkenna launaliði sem eru fráteknir fyrir frítökurétt. Að sjálfsögðu þarf að stofna þessa launaliði fyrst í: Laun > Launauppsetning > Launaliðir > Almennir launaliðir.
Í þessa launaliði er síðan hægt að skrá tíma sem tengjast frítökurétti og eru þeir sambærilegir þeim sem lýst er að ofan.
Til að stofna launaliði með
margfaldara þarf að fara í: Laun > Launauppsetning > Launaliðir > Almennir launaliðir,
stofna nýjan launalið [INS Ný] og þá opnast form eins og sést hér fyrir neðan: Hér
er hægt að fylla út liðina: Frítökuréttur – margfaldari: og haka við
Frítökuréttur – Áunninn. Ef margar reglur eru til fyrir margfaldara, t.d. 1,662
eða 1,5, þá þarf að stofna nýja launaliði fyrir hvern og einn og einnig fyrir
Áunninn og Nýttan, ágætt getur verið að nefna launaliðinn í samræmi við regluna
eins og sést á myndinni. Ef núll er sett í margfaldarann, þá er hann ekki
notaður fyrir frítökurétt. Ef hakað er við Frítökuréttur – Áunninn breytist
hann í Frítökuréttur – Nýttur og þá er sá launliður notaður fyrir nýtingu.
Hægt er að haka við „Nýta frítökurétt fyrst, á undan orlofi“ í flipanum: Laun- Orlof og frítökuréttur undir: Laun > Uppsetning > Almennar stillingar. Þá er ónýttur frítökuréttur settur upp í tekið orlof sem skráð hefur verið í Valmyndinni undir Skráning tíma og launa, sjá hér fyrir neðan. Dæmi um þetta gæti verið ef tekið orlof er 17 tímar, áunninn frítökuréttur er 15 tímar og nýttur frítökuréttur er 10 tímar, þá myndu 5 tímar sem annars yrðu inneign frítökuréttar ganga upp í orlofið. Það yrði 12 tímar en inneign frítökuréttar yrði 0.
Notað orlof verður þá: 17 – ((15 – 10) * 1,662) = 8,69