Hvað er Duo Mobile og til hvers er það notað?

Hvað er Duo Mobile og til hvers er það notað?

Góðan daginn

Duo Mobile er öryggisapp sem er notað til að staðfesta innskráningu í Hýsingaraðgang.

Þegar þú skráir þig inn á vistunina kemur tilkynning í Duo Mobile appið í símanum þínum. Þar þarftu að samþykkja innskráninguna áður en þú kemst áfram inn.

Þetta er gert til að auka öryggi og tryggja að það sért í raun þú sem ert að skrá þig inn.

Af hverju þarf ég Duo Mobile?

Duo Mobile er notað sem auka öryggisstaðfesting.

Venjulega skráir þú þig inn með notandanafni og lykilorði. Með Duo Mobile bætist við eitt skref:

  1. Þú slærð inn notandanafn og lykilorð.
  2. Tilkynning kemur í Duo Mobile appið í símanum þínum.
  3. Þú samþykkir tilkynninguna.
  4. Þá færðu aðgang að vistuninni.

Þetta þýðir að þó einhver komist yfir lykilorðið þitt, þá kemst viðkomandi ekki inn nema hafa einnig aðgang að símanum þínum.

Hvernig virkar þetta?

Þegar tækið þitt hefur verið tengt við Duo-notandann þinn fær síminn þinn tilkynningu í hvert skipti sem þú reynir að skrá þig inn á Hýsingaraðganginn.

Í tilkynningunni getur þú valið að:

  • Samþykkja innskráninguna ef það ert þú sem ert að skrá þig inn.
  • Hafna innskráningunni ef þú kannast ekki við hana.

Mikilvægt er að samþykkja aðeins innskráningu sem þú sjálf/ur óskaðir eftir.

    • Related Articles

    • DUO - Samþykkja innskráningu

      Samþykkja innskráningu með DUO appi Þegar lokið hefur við uppsetningu á 2 þátta auðkenningunni þá þarf framvegis að samþykkja innskráningu með DUO appinu. Ef ekki kemur upp tilkynning (e. notification) á símann, þá þarf að opna appið og samþykkja þar ...
    • Uppsetning á fjölþátta auðkenningu gegnum DUO

      Hvað er DUO? DUO er skýjaþjónusta frá CISCO sem býður fjölþátta auðkenningu. Einn af mikilvægustu öryggisþáttunum til að vernda notendur er notkun fjölþátta auðkenningar. Fjölþátta auðkenningar (Multi Factor Authentication – MFA) er þegar þú skráir ...
    • Fjölþátta auðkenningar (MFA) Mikilvægi

      Mikilvægi fjölþátta auðkenningar (MFA) Fjölþátta auðkenning (MFA) er ein einfaldasta og árangursríkasta leiðin til að tryggja öruggan aðgang að kerfum. Þrátt fyrir að innleiðing hennar geti tekið tíma og krafist aðlögunar, er hún nauðsynleg til að ...
    • DUO instructions - English

      What is DUO? DUO is a cloud-based service from Cisco that provides Multi-Factor Authentication (MFA). One of the most important security measures to protect users is the use of multi-factor authentication. Multi-Factor Authentication (MFA) means that ...
    • Mínar síður > nýtt tæki / viðbótartæki notanda

      Setja nýjan síma á hýsingarnotendur Farið inn á Mínar síður og skráið ykkur inn. Ef þú ert ekki með aðgang þarf að fara í heimabanka fyrirtækisins og finna boð undir "Rafræn skjöl". Þegar innskráningu er lokið þarf að fara undir "Umsýsla" og smella á ...