Farið inn á
Mínar síður og skráið ykkur inn. Ef þú ert ekki með aðgang þarf að fara í heimabanka fyrirtækisins og finna boð undir "Rafræn skjöl".
Þegar innskráningu er lokið þarf að fara undir "Umsýsla" og smella á "Senda kóða" til þess að fá auðkenningarkóða í tölvupósti svo hægt sé að eiga við notendur fyrirtækisins.
ATH: Það getur tekið nokkrar mínútur fyrir kóðann að berast í tölvpósti
Setjið kóðann í textaboxið og smellið á "Staðfesta kóða".
Þar er hægt að bæta við tækjum eða eyða af notanda. Til þess að gera það þarf að:
1. Smella á hamborgarann hægra megin við nafn notanda
2. Smella svo á "MFA"
3. Ýta á Nýtt tæki
4. Setja lýsingu á tækinu (nafn þess sem á tækið/símann)
5. Stofna tækið og virkja það
a. fyrsta tækið (sem er tengt við símanúmerið sem er sett inn í Upplýsingar-hlutann) fær 2 SMS, annað til að sækja öryggisapp, hitt til að virkja fjölþátta auðkenningu
b. öll viðbótar tæki þurfa að byrja á að sækja DUO Mobile appið á tækið/símann
6. QR-kóði er skannaður inn til að tengja og virkja tækið við notandann.
Þá hefur tæki/tækjum verið bætt við notandann og viðkomandi getur skráð sig inn í hýsingarumhverfið.
Við innskráningu í hýsingarumhverfið opnast DUO gluggi inni í hýsingarumhverfinu og fyrsta tækið fær fyrstu beiðni um staðfestingu á innskráningu.
Aðilar með önnur tæki þurfa að smella þar á Cancel og velja svo sitt tæki eftir heiti tækisins úr flettilistanum efst í DUO glugganum og smella svo á Send push og staðfesta svo innskráninguna í hýsingarumhverfið.