Vara sem á ekki að fara á kassa

Vara sem á ekki að fara á kassa

Hægt er að stjórna því hvort að viðkomandi sjái óvirkar vörur á afgreiðslukassa eða ekki með þessu haki hér: 

Ef hakið hér er í þá síar kassinn ekki út óvirku vörurnar og sýnir þær allar í vöru/birgðalistanum í kassanum.
Ef hakið er ekki í þá sýnir kassinn ekki óvirku vörurnar, einungis í dk-inu.



Ef viðkomandi vill sjá óvirkar vörur en vill samt stjórna því að nokkrar vörur sendist aldrei á kassann þá er hægt að haka í bannað að senda á kassa. 
Einnig ef það eru nokkrar vörur sem mega vera til inní dk-inu en eiga ekki að sendast á kassa eða sjást á kassa án þess að þær séu óvirkar. 

Þá er ráð við því að haka í á vöruspjaldinu undir flipanum ,,Sala"
,,Bannað að senda á kassa" 

Þá er kassinn bara að taka þær vörur yfir sem eiga að sjást á kassanum. 
Gott er að gera þetta ef að vöruskrá er mjög stór og nokkrar vörur kannski hættar eða viðkomandi vill ekki óvirkja þær í dk-inu af einhverjum ástæðum. 


Þegar að búið er að gera þessar breytingar er svo gott að velja í bakvinnslunni sækja frá dk og velja þá bara vörur og haka í ,,hreinsa töflur og uppfæra allt."
ATH! Passa þó að gera ekki þessa vinnslu þegar það er mikið að gera í verslun gera frekar á rólegum tíma. 
Getur tekið nokkrar mínútur. 


Svo í framhaldi ,,senda á kassa" velja bara vörur, ,,hreinsa töflur og uppfæra allt."


Næst:




    • Related Articles

    • Uppgjör prentast ekki á kassa

      Starfsmaður hefur þá líklega ekki leyfi / réttindi til að prenta uppgjör. Lagfæra í bakvinnslu > Gögn > Sölumenn > opna sölumanninn sem náði ekki að prenta. Haka í ,,getur prentað uppgjör"
    • Vörumóttakendur á kassa

      Sjá pdf - fyrir skýrari myndir - Viðhengi fylgir með
    • Ákveðið verð í kassa / birgðageymsla í kassa

      Ef viðskiptamaður vill hafa sérstakt verð í kassakerfinu hjá sér. T.d. viðskiptamaður er með verð 1 skráð í dk sem heildsöluverð en verð 2 er búðarverðið. Þá er hægt að stilla hér að verð 2 er verðið sem birtist á kassanum. Sama á við um ...
    • Texti með línu í afgreiðslukerfi

      Byrjum á að opna bakvinnsluna. Í vinstra horni bakvinnslunnar í Stillingar → Kassar (á stiku) → Kassa uppsetning (flipinn) → smella á Default línuna (eða ákv.verslun → Sérsníða 2 (flipi 6) → Haka í ,,Nota flýtihnappa fyrir texta reikningslínu." ...
    • Prentari tengist ekki dkPos

      Hér er stuttur listi um það sem má skoða ef prentarinn er ekki að svara þegar sent er á hann úr afgreiðslukerfinu. Byrjaðu á þessu: * Endurræsa tölvuna * Slökkva og kveikja á prentaranum * Skoða hvort prentari sé ekki örugglega tengdur við tölvuna * ...