Uppskriftir

Uppskriftir

Uppskriftir

Uppskriftakerfið í dk er nokkurs konar viðauki við Birgðir og Sölu. Hlutverk þess er margþætt og nýtist fyrirtækjum úr ýmsum geirum atvinnulífsins, bæði stórum og smáum. Uppskriftakerfið er í raun bæði uppskriftir og framleiðsla. Með uppskriftum er átt við að kerfið heldur utan um „uppskriftir“, þ.e. hvaða hráefni fer í tiltekna vöru og auðveldar t.d. alla reikningagerð, tilboðsgerð og sölupantanagerð, þar sem aðeins þarf að skrá eina línu í stað margra. Með framleiðslu er átt við að kerfið auðveldar framleiðslu/uppfærslu á stöðu lagers, auk þess að halda utan um stöðu hráefnis (íhluta). Hægt er að fylgjast með því hvaða hráefni er komið nálægt lágmarkslager og síðan má nota þær upplýsingar til að stýra hráefniskaupum fyrirtækisins.

Notandi getur á augabragði séð, á skjá eða prentara, hvað liggur að baki ákveðnu vörunúmeri eða fengið lýsingu á því hvernig framleiða á / eða setja saman einstaka vöru. Kerfið getur einnig sagt til um hvort hægt sé að framleiða ákveðið magn af tiltekinni vöru miðað við núverandi lagerstöðu. Verðútreikning má framkvæma í kerfinu og er hægt að velja hvort eigi aðeins að sýna breytingu á verð ef hráefnisverðið hefur breyst eða hvort uppfæra eigi verðið á uppskriftarvörunni.

Uppskrift getur samanstaðið af öðrum uppskriftum og eru engin takmörk fyrir því hversu mörg þrepin eru.

Áður en hægt er að stofna uppskriftir þá þarf að stofna þær vörur sem tilheyra uppskriftinni, þ.e bæði hráefnisvörur (íhluti) og uppskriftarvörur. Hráefni er af tegundinni Lagervara en Uppskriftir af tegundinni Uppskrift. Við þurfum því að byrja á að stofna vörunúmer fyrir allt hráefni (íhluti) og síðan stofnum við vörunúmer fyrir Uppskriftir (fullunnar vörur)



Á myndinni hér fyrir ofan sjáum við dæmi um vörur af tegundinni Lagervara. Þessar vörur gætu verið hráefni (íhlutir). Við sjáum einnig dæmi um vöru af tegundinni Uppskrfit. Þessi vara er fullunnin vara sem samanstendur af öðrum vörum.

Hér eru leiðbeiningar fyrir stofnun uppskrifta
    • Related Articles

    • Stofna uppskrift

      Stofna uppskrift Fyrst þarf að stofna vöru sem er uppskriftin - Tegund vöru þarf að vera "Uppskrift" Til að stofna uppskrift veljum við Birgðir > Framleiðsla > Uppskriftir > INS Ný Nauðsynlegt er að gefa uppskriftinni númer og lýsingu. Síðan þarf að ...
    • CSV innlestur í vöruskrá

      CSV innlestur í vöruskrá 1. Byrja þarf á því að búa til excel skrá með upplýsingum sem lesa á inn í vöruskrána. Öll dálkaheiti þurfa að vera á ensku. Í viðhengi er skjal með helstu dálkaheitum á ensku og íslensku. Ef dálkaheitin eru ekki í skjalinu ...
    • CSV innlestur birgðir

      Til að taka út vöruskrá og bæta og breyta henni og lesa inn aftur þarf að byrja á eftirfarandi. Öll dálkaheiti þurfa að vera á ensku. Í viðhengi er skjal með helstu dálkaheitum á ensku og íslensku. Ef dálkaheitin eru ekki í skjalinu sem er í viðhengi ...