Til að taka út vöruskrá og bæta og breyta henni og lesa inn aftur þarf að byrja á eftirfarandi.
Öll dálkaheiti þurfa að vera á ensku. Í viðhengi er skjal með helstu dálkaheitum á ensku og íslensku.
Ef dálkaheitin eru ekki í skjalinu sem er í viðhengi er hægt að finna ensku dálkaheitin með því að halda niðri Ctrl+Alt og smella með músinni á dálkaheitið. Hér fyrir neðan er dæmi um dálkinn vörunúmer sem þyrfti að heita "itemcode" í CSV innlestrarskjalinu.
Byrja á að taka út í Excel vöruskrána.
Birgðir - Vörur - Hægri smella - Flytja út í - Excel skrá
Hægt að sía út ákveðna vöruflokka til að taka út t.d. bara 1 vöruflokk en ekki alla vöruskránna.
Með því að gera CTRL + G og sía út á viðeigandi flokk eða skilyrði.
Vista á C drifi eða Drifi inná tölvu viðkomandi svo að hægt sé að opna Excel skjalið utan vistunar og vinna í því.
Gefa Excel skjalinu heiti:
SAVE
Vinna svo í skjalinu eins og þörf er á og setja þá inn ,,nativenames"
ITEMCODE í efstu röð fyrir Vörunúmer o.s.fr.v.
Svo þegar skjalið er tilbúið þá er lang best að copera alla dálkana, efstu röð og alla dálkana með skilyrðunum.
Vista svo nýja skjalið sem lesa á inn með þessu formati.
Gott er að eiga alltaf afrit af excel skránni sem unnið er í.
Sjá viðhengi fyrir nokkrar útgáfur af dálkum.
Svo lesa inn skjalið hér:
Vörur F5 valmynd - Gagnaflutningur - Lesa inn frá CSV skrá.