Uppsetning vistunar í Macbook tölvum
Það sem þarf að gera er:
1. Sækja Windows App
2. Sækja tengiskrá
Leiðbeiningar fyrir handvirka uppsetningu (án tengiskrár) eru í skrefi 3.
1. Sækja Windows App
Windows App er einföld prentlausn sem styður illa t.d. fjöldaprentun sölureikninga en virkar fyrir aðrar almennar prent aðgerðir.
Sækja þarf Windows App forritið í App store til að nýta þessa prentlausn.
Þegar uppsetningu er lokið er forritið opnað.
2. Sækja tengiskrá
Kennitala dk leyfishafans er slegin inn og ýtt á "Sækja". Við það hleðst niður tengiskrá.
Til að setja upp tengingu er farið í "Connections" og "Import Desktops" og skráin sem var hlaðið niður er valin.
Þá verður til tenging undir Saved Desktop. Til að ræsa hana er tvísmellt á tengingu.
Við fyrstu tengingu þarf að slá inn dkvistun\notendanafn og lykilorð og velja "Continue".
3. Handvirk uppsetning
Fyrst þarf að sækja Windows app (Sjá skref 1 að ofan).
Þegar uppsetningu á Windows appi er lokið, er forritið opnar.
Fylla þarf út upplýsingarnar hér að neðan:
PC name: Það umhverfi sem á að tengjast við.
Ef ekki er vitað hvaða umhverfi á að tengjast er hægt að ná í skránna í skrefi 2 (hér að ofan) eða hafa samband við dk.
User account: dkvistun\notendanafn (sjá næstu mynd)
Friendly name: dkVistun
Gateway; Smella á "Add new gateway (sjá næstu mynd)
Notendaupplýsingar eru settar inn þar fyrir neðan.
Add new gateway:
Gateway name: security.dkvistun.is
Server: security.dkvistun.is
Username: dkvistun\notandanafn
Password: Lykilorð notanda
Ýta svo á "Add"
Næst þarf að smella á flipann "Devices & Audio" og setja hak undir Redirect við "Printers" til að prentarar tengist.
Ef taka á með rafræn skilríki (Smart cards) og klippiborð (Clip board), hakið einnig við það.
Ef tengja á möppu af tölvunni yfir í dkVistun þá þarf að haka í "Redirect folders".
Þegar uppsetningu er lokið verður til tenging sem smellt er á til að tengjast dkVistun.