Uppsetning áskriftapantana sem tengdar eru vísitölu

Uppsetning áskriftapantana sem tengdar eru vísitölu

Uppsetning áskriftapantana sem tengdar eru vísitölu

Við uppsetningu áskriftapantana sem tengjast vísitölu þarf að byrja á að fara í Sölureikningar > Uppsetning > Almennar stillingar > Áskriftapantanir - Almennt og haka við ,,Slá inn grunnvísitölu til verðútreiknings á áskriftarpantanalínu“. Velja þarf tegund vísitölu. Við uppsetningu áskriftarpöntunarinnar er upphafsvísitölu (vísitölu við gerð samnings) slegið inn á sölulínuna ásamt magni og verði.



Dæmi:

Mánaðarlega fær Jón Jónson reikning fyrir húsaleigu sem tengd er vísitölu. Húsaleigusamningurinn tók gildi 1.1.2016 og gildistími hans er til 31.12.2016. Áskriftapöntunin gæti því litið svona út.



Um er að ræða áskriftapöntun sem lítur nákvæmlega eins út og sölureikningur. Eini munurinn er sá að hér þarf að setja inn áskriftaflokkinn ,,Húsaleiga“ og búið er að setja inn gildistíma samnings og vísitölu við gerð samnings. Þegar keyrður er út reikningur frá áskriftapöntunum þá veljum við flokkinn ,,Húsaleiga“ og þá koma einungis þeir reikningar sem merktir eru þeim flokki. dk notendur geta haft eins margar áskriftapantanir og eins marga áskriftaflokka og þeir kjósa. Hægt að setja eingöngu inn ,,Gildir frá dagsetningu“ þegar um ótímabundinn samning er að ræða. Einnig er hægt að setja inn áskriftapöntun með gildistíma fram í tímann ef um er að ræða samning sem tekur gildi síðar.

Þegar áskriftapöntun er færð yfir á sölureikning þá er hægt að gera það undir Sölureikningar > Áskriftarpantanir > F5 Valmynd > Flytja áskriftarpantanir á reikninga. 
Við það opnast gluggi þar sem hægt er að velja ákveðinn flokk eða alla flokka, tímabil frá og til og svo undir flipanum Vísitölur er sett vísitöluupphæðina sem er í gangi á þeim tíma. 



Við það stofnast sölureikningur undir Sölureikningar > Uppflettingar > Óprentaðir reikningar,  þar er hægt að yfirfara reikningana - eyða þeim ef þeir eru rangir eða þá uppfæra þá og bóka. 

Hægt er að prenta marga sölureikninga í einu undir Sölureikningar > Vinnslur > Prenta sölureikninga  - hakar í Óprentaðir reikningar og velur tímabil frá og til. Þá prentar kerfið alla óprentaða reikninga á því timabili og bókar þá yfir í prentaðir reikningar og inn í fjárhag. 

    • Related Articles

    • Almennt um áskriftapantanir

      Áskriftapantanir Almennt um áskriftapantanir Áskriftapantanir er hentugar notendum dk hugbúnaðar þegar viðskiptavinur þeirra greiðir áskriftarverð fyrir aðgang að vöru eða þjónustu. Áskriftapantanir eru m.ö.o. uppstilling á reikningum sem alltaf eru ...
    • Endurreikna áskriftapantanir

      Endurreikna áskriftarpantanir Áskriftapantanir eru fyrirfram uppsettir reikningar sem keyrðir eru út á ákveðnum tímabilum. Þeir geta því staðið óbreyttir til langs tíma. Verð breytast og viðskiptamenn skipta um heimilisföng og fleira þannig að ...
    • Vista tengdar skrár í gagnagrunn

      Vista tengdar skrár í gagnagrunn Ef vista á öll viðhengi og aðrar tengdar skrár í gagnagrunn, í stað þess að skjölin séu bundin við slóð á drifi o.þ.h., þá er hægt að fara undir Almennt > Fyrirtæki > Almennar stillingar > Haka í "Vista tengdar skrár ...
    • Uppsetning deilda

      Uppsetning deilda Þegar notaðar eru deildir í dk þurfa allar færslur fyrirtækisins að vera deildarmerktar. Þegar tekin er upp notkun á deildum í dk þarf að byrja á því að: 1. Uppfæra allar dagbækur (launakerfi, fjárhag, sölu). 2. Setja deildir í ...
    • Eignfærður lager - Uppsetning

      Eignfærður lager Sjálfgefin uppsetning á birgðakerfinu er að birgðir séu gjaldfærðar. Til að setja upp eignfærðan lager þarf að breyta uppsetningu í birgðum, breyta fjárhagslyklum, sölubókunarflokkum og innkaupabókunarflokkum. Eignfærður lager gengur ...