Eignfærður lager - Uppsetning

Eignfærður lager - Uppsetning

Eignfærður lager

Sjálfgefin uppsetning á birgðakerfinu er að birgðir séu gjaldfærðar. Til að setja upp eignfærðan lager þarf að breyta uppsetningu í birgðum, breyta fjárhagslyklum, sölubókunarflokkum og innkaupabókunarflokkum.
Eignfærður lager gengur út á það að öll vörukaup eru eignfærð og gjaldfærsla á sér bara stað þegar sala bókast eða aðrar birgðabreytingar.

Birgðakerfið sem slíkt heldur ekki utan um eignfærslu á lagernum. Það þarf að stilla það þannig í uppsetningu í birgðum að lager sé eignfærður.  Það þýðir að þegar þú uppfærir lager hreyfingu og hún fær mótbókun í fjárhag þá fer hún inn og út af eignarlykli þar. En ef þetta er ekki stillt þannig þá þarf að gera leiðréttingu í fjárhagnum og bóka leiðréttingarfærslu á vörukaupalykla og eignarlykla. 

Fjárhagur

Stofna bókhaldslykil fyrir kostnaðarverð seldra vara, undir vörunotkun, t.d. 2190. Ef búið er að vinna með gjaldfærðan lager, þarf að loka öllum reikningslyklum sem tilheyra vörunotkuninni, s.s. vörukaup.
Stofna þarf lykla undir 751x þá sömu og verið er að nota undir 210x.
Ef breytt er á miðju ári þarf annað hvort að færa stöður af gjaldalyklum á eignalykla eða flytja allar færslur.

ATH: Ef þetta er nýtt kerfi tekið í notkun þá þarf einungis að stofna eignalyklana og eyða gjaldalyklunum á móti. 




Stofna bókhaldslykla undir birgðum í efnahagsreikningi, s.s. :

7520 Vörubirgðir (er án vsk)
7525 Vörukaup 25,5% vsk.
7528 Vörukaup 7% vsk.
7530 Vörukaup erlend
7532 Flutningskostnaður 25,5% vsk.
7533 Flutningskostnaður án vsk.
7540 Vörusala (er án vsk) (þessi lykill minnkar eignir um leið og kostnaðarverð er gjaldfært)



Uppsetning Birgðakerfis

Byrja þarf á því að haka þarf við "Eignfærður lager" undir Birgðir > Uppsetning > Almennar stillingar.
Fara síðan í "Uppsetning fyrir fjárhagsbókun" og stilla þar bókun fyrir birgðabreytingafærslur s.s talningu og birgðaskráningu.



Sölubókunarflokkar

Velja þarf bókhaldslykil fyrir vörunotkun og birgðir á bókunarflokkum sölu undir Birgðir > Uppsetning > Sölubókunarflokkar. 
Vörunotkun er lykill fyrir kostnaðrverð seldra vara (t.d 2190)
Birgðir er lykillinn sem minnkar eign á móti gjaldfærslunni (t.d 7540)




Innkaupabókunarflokkar

Velja þarf bókhaldslykil fyrir vörubirgðir á bókunarflokkum innkaupa undir Birgðir > Uppsetning > Innkaupabókunarflokkar. 
(Skipta þarft út innkaupabókhaldslyklum úr 21xx í 75xx)



Lokun birgða

Þeir sem nota eignfærðan lager þurfa að uppfæra kostnaðrverð birgða. Það er gert undir Birgðir > Vinnslur > Lokun birgða. (Best að gera þetta mánuð fyrir mánuð miðað við eftir hvert vsk tímabíl)



    • Related Articles

    • Staðsetning á lager

      Staðsetning á lager Ef fyrirtæki er ekki að nota birgðageymslur þá er staðsetning á lager skráð á vöruspjaldinu sjálfur undir [Almennt] Ef fyrirtæki eru að nota birgðageymslur þá er farið hér: Til að merkja staðsetningu á lager á vöru þá er farið í ...
    • Skrá magn inn á lager á eina vöru í einu

      Skrá magn inn á lager Hægt er að skrá magn á lager á eina vöru í einu með því að fara í Birgðir > Vörur > Hafa vöruna valda > F9 / eða F5 Valmynd > Skrá magn inn á lager. Annars er lager magn skráð inn undir Birgðir > Birgðabreytingar > ...
    • CSV innlestur birgðir

      Til að taka út vöruskrá og bæta og breyta henni og lesa inn aftur þarf að byrja á eftirfarandi. Öll dálkaheiti þurfa að vera á ensku. Í viðhengi er skjal með helstu dálkaheitum á ensku og íslensku. Ef dálkaheitin eru ekki í skjalinu sem er í viðhengi ...
    • Uppsetning deilda

      Uppsetning deilda Þegar notaðar eru deildir í dk þurfa allar færslur fyrirtækisins að vera deildarmerktar. Þegar tekin er upp notkun á deildum í dk þarf að byrja á því að: 1. Uppfæra allar dagbækur (launakerfi, fjárhag, sölu). 2. Setja deildir í ...
    • Strikamerkjavinnslur - uppsetning

      Strikamerkjavinnslur - uppsetning Uppsetning strikamerkjavinnslu fyrir vörur sem eru seldar innan fyrirtækis. (Forskeyti 112...) Birgðir > Strikamerkjavinnslur > Uppsetning Hér er hakað við "Leyfa úthlutun á strikamerkjum". Fylla síðan inn númerin ...