Almennt um áskriftapantanir

Almennt um áskriftapantanir

Áskriftapantanir

Almennt um áskriftapantanir

Áskriftapantanir er hentugar notendum dk hugbúnaðar þegar viðskiptavinur þeirra greiðir áskriftarverð fyrir aðgang að vöru eða þjónustu. Áskriftapantanir eru m.ö.o. uppstilling á reikningum sem alltaf eru eins á milli tímabila. Í staðinn fyrir að selja vörur eða þjónustu sem staka sölu þá selur áskrift notkun eða aðgang að vöru eða þjónustu á ákveðnum tímabilum (dag-, viku-, mánaðar- eða árlega).

Í dag er notkun á áskriftapöntunum hjá, bókaútgáfum, bakaríum, heilsuræktarstöðvum, internetfyrirtækjum, hugbúnaðarfyrirtækjum, tölvuþjónustum, leigusölum og fleirum sem þurfa að gefa út reikninga sömu upphæðar til viðskiptavina sinna. Hægt er að tengja áskriftapantanir vísitölum sem er hagræði fyrir þá sem eru með verðtryggða samninga.

Áskriftapantanir má flokka m.a. á eftirfarandi hátt:
  1. Föst áskrift að vöru eða þjónustu sem berast á viðskiptavini á hverjum degi.
    1. Dæmi um þetta eru bakarí sem senda ákveðið magn til endursöluaðila og mötuneyta á hverjum degi. 
  2. Áskrift að bóka/blaðaklúbbi þar sem ,,bók/blað mánaðarins/ársins” er sent viðskiptavini á sama verði á hverju tímabili. 
  3. Áskrift að hugbúnaðar- og tölvuþjónustu.
    1. Dæmi um slíkt er áskrift að ótakmarkaðri notkun á þjónustu eða þjónustum þar sem viðkomandi viðskiptavinur hefur gert samning um að greiða mánaðar-/árlegar upphæðir. 
  4. Leiga.
    1. Dæmi um slíka þjónustu er t.a.m. leiga þar sem viðskiptavinur hefur samning við leigusala um ákveðna mánaðar-, árlega leigu að afnotum eigna hans.


Almennt um áskriftapantanir í dk

Í sölukerfi dk hugbúnaðar eru svokallaðar Áskriftapantanir sem hjálpa til við að halda utan um samninga/áskriftir. Þetta eru í raun fyrirfram uppsettir sölureikningar sem varpa má á ákveðnum tímabilum yfir á reikninga með auðveldum hætti. Helstu kostir áskriftapantana eru þeir að ekki þarf að handslá inn á hverju tímabili samskonar reikninga heldur má færa þá inn með einni vinnslu og skuldfæra þannig á viðskiptavini fyrir þeim vörum eða þjónustum sem þeir eru áskrifendur að.





    • Related Articles

    • Uppsetning áskriftapantana sem tengdar eru vísitölu

      Uppsetning áskriftapantana sem tengdar eru vísitölu Við uppsetningu áskriftapantana sem tengjast vísitölu þarf að byrja á að fara í Sölureikningar > Uppsetning > Almennar stillingar > Áskriftapantanir - Almennt og haka við ,,Slá inn grunnvísitölu til ...
    • Endurreikna áskriftapantanir

      Endurreikna áskriftarpantanir Áskriftapantanir eru fyrirfram uppsettir reikningar sem keyrðir eru út á ákveðnum tímabilum. Þeir geta því staðið óbreyttir til langs tíma. Verð breytast og viðskiptamenn skipta um heimilisföng og fleira þannig að ...
    • Almennt um verkbókhaldið

      Almennt um verkbókhaldið Verkkerfið sem er að öllu leyti samtengt öðrum kerfishlutum í dk Viðskipta- og upplýsingakerfinu er notað við stýringu verka. Það fylgist með kostnaði og notkun forða (tímaskráningu starfsfólks) og veitir möguleika á að gera ...
    • Sérprentlýsing - Aðrir sölureikningar / Auðkenni lýsingar

      Aðrir sölureikningar / Auðkenni lýsingar Ef skuldunautur/ar eiga að vera með sérprentlýsingu frekar en almenna prentlýsingu þarf að byrja að fara í Sölureikningar > Uppsetning > Almennar stillingar > flipinn "Sölureikningar - Prentun" > smella á ...
    • Sækja um vefþjóðskrá

      Vefþjóðskrá virkar þannig að sótt er um aðgengi og greitt er eftir notkun. Til að sækja um Vefþjóðskrá Hægt er að sækja um aðgang af vefþjóðskrá hér eða með því að opna skuldunautaspjald í dk og velja "Sækja frá Þjóðskrá" Upplýsingar eru sendar á ...