Stofna bókhaldslykil
Hægt er að stofna bókhaldslykil með tvennum hætti.
Aðferð 1
Fjárhagur > Bókhaldslyklar > INS Ný
Athugið að flokkar, tegund og vsk. merking sé rétt fyrir bókhaldslykilinn.
Aðferð 2
Stofna nýjan bókhaldslykil með því að afrita bókhaldslykil sem til er fyrir. Best er að finna sambærilegan lykil til að afrita.
Fjárhagur > Bókhaldslyklar > Hefur bókhaldslykilinn valinn sem á að afrita > F5 Valmynd > Stofna afrit af færslu
Breyta þarf númeri og heiti lykils, og setja inn þá uppsetningu sem við á. Aðrar stillingar svo sem flokkur, tegund, samtölur og skýrslur afritast.