Að stemma bókhaldslykil af í gegn um bankahreyfingar

Að stemma bókhaldslykil af í gegn um bankahreyfingar

Að stemma bókhaldslykil af í gegn um bankahreyfingar

Byrjað er á að stofna bókhaldslykilinn sem stemma á af sem bankareikning.
Fjárhagur > Bankahreyfingar > Bankareikningar > INS Ný. Bankaupplýsingarnar eru skáldaðar upp (bankareikningsnúmer, útibú og höfuðbók) og bókhaldslykillinn sem stemma á af er valinn sem bókhaldslykill. Á flipanum „Jöfnun“ er hakað í „Afstemming án bankahreyfinga“. Þannig er kerfinu sagt að það séu ekki utanaðkomandi upplýsingar til að stemma af við.


Næst er farið í Fjárhagur >  Bankareikningar > Afstemmingar, „bankinn“ valinn og ýtt á enter. Þá opnast glugginn „Ófrágengnar hreyfingar“. Þar er smellt á F5 valmynd og úr felliglugganum sem birtist er valið að „Sækja hreyfingar“. 



Þá birtist gluggi þar sem hægt er að slá inn tímabil og velja hvort aðeins eigi að sækja jafnaðar eða ójafnaðar hreyfingar en almennt eru aðeins ófrágengnar hreyfingar sóttar. Svo er ýtt á F12 og þar næst á „já“ í staðfestingarglugganum sem birtist. Þá keyrist inn listi yfir umbeðnar hreyfingar. Hægt er að tæma gluggann með því að smella á F5 valmynd og hreinsa jöfnun.





Þegar búið er að lesa inn hreyfingar fyrir tímabilið er hægt að jafna færslur. Ef „feik“ bankareikningur er notaður þarf að handjafna allar færslur, þar sem aðeins er um fjárhagsfærslur að ræða. Færsluglugginn sem birtist er með upphæð í reitunum samtals fjárhagur/banki en reiturinn almennt fjárhagur/banki er tómur (neðst í glugganum). Sé hakað við færslu birtist upphæð bæði í almennt fjárhagur/banki gluggunum. Eftir að búið er að haka við mótfærsluna verður upphæðin núll í báðum reitum.
Athugið! Þegar unnið er með jöfnun í venjulegum bankainnlestri er verið að leita að hreyfingum þar sem önnur kemur frá banka en hin fjárhag og færslurnar sem á að jafna hafa því sama formerki (++ eða --). Ef unnið er með „feik“ banka koma báðar hreyfingar frá fjárhag og er þá leitað að færslum með öfugu formerki (+-). Hægt er að raða dálkum að vild, t.d. í dagsetningaröð eða fylgiskjalaröð með því að smella í dálkhausinn.





Eftir að búið er að velja þær færslur sem á að jafna er smellt á F5 valmynd og „uppfæra jöfnun“ og svo á F12 ef ekki á að velja sérstaka dagsetningu sem jöfnunardag. Ef dagsetning á nýjustu bankafærslu er notuð þá finnur kerfið nýjustu færsluna sem er jöfnuð og miðar við hana. Á myndinni að hér að ofan væri jöfnunardagsetningin 02.02.21





    • Related Articles

    • Innlestur bankahreyfinga í dagbók

      Innlestur bankahreyfinga í dagbók Í viðhengi má sjá leiðbeiningar fyrir innlestur bankahreyfinga í dagbók.
    • Sækja bankahreyfingar - Leiðbeiningar, leiðir og kröfur eftir bönkum

      Sækja bankahreyfingar Þegar bankaafstemmingarkerfið er tekið í notkun þarf fyrst að stofna þá bankareikninga sem á að stemma af. Að því loknu er hægt að sækja bankahreyfingar. Í dk er hægt að sækja bankahreyfingar á tvo vegu: Eldri leiðin (upprunaleg ...
    • Stofna bókhaldslykil

      Stofna bókhaldslykil Hægt er að stofna bókhaldslykil með tvennum hætti. Aðferð 1 Fjárhagur > Bókhaldslyklar > INS Ný Athugið að flokkar, tegund og vsk. merking sé rétt fyrir bókhaldslykilinn. Aðferð 2 Stofna nýjan bókhaldslykil með því að afrita ...
    • Bankahreyfingar - vinnsluferli

      Ferlið við notkun bankahreyfinga 1. Lesa innheimtukröfur inn og bóka, sækja greiðslur lánardrottna og bóka Skuldunautar > Innheimtukerfi banka > Sækja innborganir 2. Sækja bankahreyfingar Fjárhagur > Bankahreyfingar > sækja bankahreyfingar 3. Fara í ...
    • Skipt um bankareikning í dk

      Skipt um bankareikning í dk Ef þið skiptið um bankareikning er mikilvægt að fara í gegnum þessi 3 skref í dk. 1. Stofna nýjan bankareikning í dk: Undir Fjárhagur - Bankareikningar - Bankareikningar og INS ný 2. Stofna bókhaldslykil fyrir nýja ...