Áskrift - dk Bankakerfi rafræn afstemming áskrift

Áskrift - dk Bankakerfi rafræn afstemming áskrift

Áskrift – dk Bankakerfi rafræn afstemming

dk Bankakerfi rafræn afstemming er eining sem einfaldar og sjálfvirknivæðir bankaafstemmingu með því að sækja bankahreyfingar beint úr banka inn í dk, fyrir alla bankareikninga fyrirtækis, bæði í ISK og erlendri mynt. Með þessari lausn er ekki lengur þörf á að sækja yfirlit handvirkt úr netbanka og lesa þau inn, kerfið sér sjálfkrafa um að sækja bankahreyfingar og undirbúa þær fyrir afstemmingu í fjárhag. Lausnin er viðbót við fjárhagskerfi dk og er veitt í formi áskriftar með reglubundnu mánaðargjaldi.

Bankar bjóða ýmist upp á tengingu með rafrænum skilríkjum eða B2B tengingu (sambanka vefþjónustur), og fer það eftir banka hvaða leið er notuð.

  • Rafræn skilríki: Notuð til auðkenningar við sækjun bankahreyfinga
  • B2B tenging (sambanka vefþjónustur): Krefst þess að viðbótin Sambanka vefþjónustur sé virk í dk

Athugið að Sambanka vefþjónustur er sér eining hjá dk og er háð sérstöku mánaðargjaldi.

Til að fá nánari upplýsingar um verð og virkjun, vinsamlegast hafið samband við: sala@dk.is


Hægt er að vinna með bankahreyfingar á tvo vegu í dk:
  • Nýja leiðin (ráðlögð): Dagbók – hreyfingar sóttar og afstemmdar í einu ferli
  • Eldri leiðin: Bankareikningar – hreyfingar sóttar og afstemmdar í tveimur skrefum

Banki

Nýja leiðin                    

Eldri leiðin

Arion banki

Rafræn skilríki og sambanka vefþjónusta

Rafræn skilríki og sambanka vefþjónusta

Íslandsbanki

Rafræn skilríki og sambanka vefþjónusta

Hvorki þarf rafræn skilríki né sambanka vefþjónustur

Landsbankinn

Rafræn skilríki og sambanka vefþjónusta

Hvorki þarf rafræn skilríki né sambanka vefþjónustur

 

 


    • Related Articles

    • Rafræn skilríki í dk – yfirlit yfir tegundir og notkun

      Rafræn skilríki í dk – tegundir og notkun Í dk er hægt að nota mismunandi tegundir rafrænna skilríkja til að tengjast bönkum og öðrum þjónustum. Skilríkin eru notuð annað hvort til auðkenningar (innskráningar) eða rafrænnar undirritunar og sum ...
    • Rafræn skilríki á korti frá Auðkenni - uppsetning í dk

      Leiðbeiningar fyrir rafræn skilríki á Auðkenniskorti í dk bókhaldskerfi Til að geta notað rafræn skilríki á Auðkenniskorti í dk bókhaldskerfi þarf fyrst að vera búið að setja upp bæði Nexus Smart ID og MiniDriver á tölvunni samkvæmt ...
    • Afstemming skuldunauta

      Afstemming skuldunauta Skuldunautar eru jafnaðir undir Skuldunautar > Afstemmingar. Þar er hægt að opna hvern og einn skuldunaut og jafna handvirkt eða vélrænt jafna. Einnig er hægt að vélrænt jafna alla skuldunauta í einu með því að smella á F5 ...
    • dk hugbúnaðarskilríki - Upplýsingar og verð

      dk hugbúnaðarskilríki Viðskiptavinir dk hugbúnaðar sem eru í vistun geta fengið dk hugbúnaðarskilríki. Með skilríkinu er hægt að senda kröfu beint í banka þegar reikningur er uppfærður og minnka þannig vinnu við reikningavinnslu. Það er líka hægt að ...
    • Tóm rafræn VSK skýrsla

      Tóm rafræn VSK skýrsla Ef rafræna vsk skýrslan kemur svona upp, og búið er að bóka á vsk lykla yfir tímabilið, þá þarf að skoða eftirfarandi atriði: Er rétt vsk númer skráð undir Almennt > Fyrirtæki > Bank/VAT? Ef ekki, skrá rétt vsk númer og prófa ...