Samanþjöppuð pdf-skjöl (sölureikningar og skýrslur) frá dk

Samanþjöppuð pdf-skjöl (sölureikningar og skýrslur) frá dk

Samanþjöppuð pdf-skjöl (sölureikningar og skýrslur) frá dk

Komið það fyrir að pdf-skjöl sem dk smíðar, svo sem sölureikningar eða skýrslur, birtast samanþjöppuð (eða klesst) uppí vinstra horni skjalsins, getur það skýrst af því að kerfið sé óvart að reikna skjalasmíðina útfrá Display-stillingunni á skjánum sem unnið er á, og sú stilling er yfir 100%.
Þetta getur valdið því að pdf-skjalið minnkar hlutfallslega upp í vinstra horn skjalsins. (Sniðið er áfram A4, en textinn þjappast á skjalinu).



Hér er dæmi um 150% stillingu á skjá með upplausnina 2048x1152 punkta. Ef pdf-skjöl þjappast saman á skjá með þessum stillingum, þarf að breyta (tímabundið) aðdrættinum í 100% og keyra svo pdf-smíðina, eða færa hýsingargluggann (eða forritið fyrir þá sem eru ekki í hýsingu hjá dk) yfir á skjá sem er með 100% aðdrátt stilltann.



Hér að ofan sést stilling á sama skjá með 100% aðdrætti, athugið að Windows stýrikerfið er að mæla með meiri aðdrætti á skjánum samt sem áður.
Að neðan er svo dæmi um skjá þar sem Windows mælir með 100% aðdrætti.



Skjöl sem eru send beint á prentara koma samt sem áður í réttum hlutföllum.
Ef þetta gerist, þarf að passa uppá að reikninga- og skýrslugerð á pdf-formi sé gerð á skjá með 100% aðdráttarstillingu í Display-stillingum tölvunnar sjálfrar (ekki í hýsingaraðganginum, notendur hafa ekki aðgang að þeim stillingum).
Gott er að hafa í huga að þetta á einungis við um þær vinnslur sem smíða pdf-skjöl og að allar aðrar vinnslur (uppflettingar, dagbókarfærslur og fleira) er hægt að vinna á öllum skjám, en þær vinnslur sem smíða pdf-skjöl þyrfti að gera á skjá með 100% aðdrætti.


Á myndinni að sést að skjár 1 er valinn og að aðdrátturinn á skjánum er 100%.





    • Related Articles

    • Flytja dk á milli talva - halda uppsetningu óbreyttri (ekki í vistun)

      Flytja dk á milli talva - halda uppsetningu óbreyttri 1. Taka heildarafrit af \dk möppunni í eldri tölvunni og þjappa/zippa niður 2. Skoða PSQL license administrator í eldri tölvunni og skrifa niður leyfislykilinn Opna Zen license administrator í ...
    • IPP leiðbeiningar (Windows uppfærsla)

      Góðan daginn, Nýleg uppfærsla frá Microsoft veldur því að Remote Desktop tenging slitnar þegar prentari með IPP Class driver er tengdur við DK vistunarkerfið. Eftirfarandi eru leiðbeiningar fyrir þá sem hafa verið að lenda í því að missa samband við ...
    • Uppfæra úr gömlu dk

    • Stilla dk hýsingu fyrir einn eða fleiri skjái

      dk hýsingin fer yfir alla skjái Stilla hýsingu á einn skjá Í dkVistun Setup hugbúnaðinum, getur verið að þú sért með hakað í "Enable Multiple Display"? Hægt er að stilla fjartenginguna til að vera bara á einum skjá. Opnaðu dkVistun Setup Smelltu á ...
    • Hvað er Duo Mobile og til hvers er það notað?

      Góðan daginn Duo Mobile er öryggisapp sem er notað til að staðfesta innskráningu í Hýsingaraðgang. Þegar þú skráir þig inn á vistunina kemur tilkynning í Duo Mobile appið í símanum þínum. Þar þarftu að samþykkja innskráninguna áður en þú kemst áfram ...