CSV Innlestur í Bókunarskilgreiningar rafrænna reikninga

CSV Innlestur í Bókunarskilgreiningar rafrænna reikninga

CSV Innlestur í Bókunarskilgreiningar rafrænna reikninga

Hægt er að flýta fyrir stofnun bókunarskilgreininga fyrir rafræna reikninga með því að nota CSV-innlestur.

Ferlið hefst á því að fara í Óstaðfestir rafrænir reikningar og flytja færslurnar þaðan út í CSV-skrá. Skráin er síðan aðlöguð og uppfærð með þeim upplýsingum sem vantar.

Að lokum er uppfærða CSV-skráin lesin inn í töfluna Bókunarskilgreiningar rafrænna reikninga. 

Að því loknu er hægt að fara aftur í Óstaðfestir reikningar og stofna reikninga á grundvelli bókunarskilgreininganna.

Leiðbeiningar:

1. Opnið Óstaðfestir rafrænir reikningar.

  1. Hægt er að opna Óstaðfesta rafræna reikninga með tveimur leiðum:
    1. Lánardrottnar > Skrá reikninga > F5 Valmynd > Óstaðfestir rafrænir reikningar
    2. Innkaup > Vörumóttaka > F5 Valmynd > Óstaðfestir rafrænir reikningar

2. Flytjið færslur úr Óstaðfestum rafrænum reikningum út í CSV-skrá.

  1. Veljið: F5 Valmynd > Flytja færslur í CSV skrá
            
  1. Ýtið á punktana þrjá.
  2. Þá opnast nýr gluggi þar sem þið veljið staðsetningu fyrir skránna og gefið henni heiti, og smellið síðan á Save.
  3. Að lokum ýtið þið á F12 Staðfesta.
            

3. Opnið CSV-skrána sem var vistuð og bætið við þeim bókunarskilgreiningum sem við eiga.

  1. Ekki má breyta uppsetningu dálkanna í skránni. Einungis er heimilt að fylla út eða uppfæra eftirfarandi dálka:
    1. Tilvísun reiknings
    2. Tilvísun reikningslínu
    3. Gjaldmiðill
    4. Móttökustaður, slá skal inn viðeigandi tölugildi:
      1. [0] Óþekkt
      2. [1] Lánardrottnakerfi
      3. [2] Innkaupakerfi
    5. Sundurliða línur á tilvísun
      1. [Já] þá er hak
      2. [Nei] ekki hak
    6. Nýr bókhaldslykill
    7. Ný lýsing
    8. Ný deild
    9. Ný kostnaðartegund
  2. Ef Móttökustaður er Lánardrottnakerfi þá er opnast fyrir dálkana undir Reikningslínur:
            

  1. Ef Móttökustaður er Innkaupakerfi þá er hægt að skrá inn: Ný kostnaðartegund.
            

  1. Þegar allar viðeigandi upplýsingar hafa verið skráðar er skráin vistuð.

4. Lesið CSV-skrána inn í töfluna Bókunarskilgreiningar rafrænna reikninga.

  1. Farið í töfluna Bókunarskilgreiningar rafrænna reikninga.
    1. Lánardrottnar > Uppsetning > Bókunarskilgreiningar rafrænna reikninga.
  2. Farið svo í: 
    1. F5 Valmynd > Lesa inn gögn um óstaðfesta rafræna reikninga úr CSV skrá. 
            
  1. Smellið á punktana þrjá og veljið viðeigandi skrá.
  2. Að því loknu er ýtt á F12  Staðfesta.
            
  1. Nýju bókunarskilgreiningarnar ættu þá að hafa verið skráðar og hægt er að fara í Óstaðfesta rafræna reikninga og stofna reikninga á grundvelli nýju skilgreininganna.
    • Related Articles

    • Bókunarskilgreining rafrænna reikninga

      Bókunarskilgreining rafrænna reikninga Það eru tvær leiðir til að stýra bókun rafrænna reikninga í kerfinu. Hvaða leið á við fer fyrst og fremst eftir því hvert reikningurinn er bókaður inn (Móttökustaður). Leiðbeiningarnar skiptast í tvennt eftir ...
    • Taka bókaða sölureikninga út í CSV

      Hægt er að taka sölureikninga út í CSV ef viðkomandi vill senda alveg eins reikninga ,,endurgera þá". Þá er farið í: Sölureikningar - Vinnslur - Sölureikningar í CSV skrá og valið reikningsnúmer til og frá eða þá reikninga sem viðkomandi vill gera ...
    • CSV innlestur sölureikninga

      CSV innlestur sölureikninga 1. Byrja þarf á því að búa til excel skrá með upplýsingum um númer skuldunautar, vörunúmerum, magni o.fl. 2. Þegar allar upplýsingar hafa verið skráðar í excel skjalið þarf að vista skjalið sem CSV skrá. 3. CSV skráin er ...
    • CSV innlestur í félagaskrá

      CSV innlestur í félagaskrá Þegar lesnir eru inn félagar í félagaskrá þarf að muna eftir að bæta við dálkinum "RECTYPE" og skrá 1 í allar línur, svo félaginn stofnist bæði sem félagi og skuldunautur. Ef þessi dálkur er ekki til staðar stofnast ...
    • CSV innlestur afsláttartafla í Birgðakerfinu

      CSV innlestur afsláttartafla í Birgðakerfinu Hægt er að lesa inn afsláttartöflur með CSV innlestri undir Birgðir > Afsláttarvinnslur > Afsláttartöflur > F5 Valmynd > Lesa inn frá CSV-skrá. Eftirfarandi dálkar þurfa að vera í innlestrarskjalinu, í ...