CSV innlestur afsláttartafla í Birgðakerfinu

CSV innlestur afsláttartafla í Birgðakerfinu

CSV innlestur afsláttartafla í Birgðakerfinu

Hægt er að lesa inn afsláttartöflur með CSV innlestri undir Birgðir > Afsláttarvinnslur > Afsláttartöflur > F5 Valmynd > Lesa inn frá CSV-skrá.



Eftirfarandi dálkar þurfa að vera í innlestrarskjalinu, í sömu röð og þarna kemur fram. Ekki þarf þó að fylla út í alla dálka. 
Skrá þarf annað hvort inn skuldunaut eða flokk skuldunauta. Dálkurinn sem ekki er skráð í á að vera tómur. 
Skrá þarf inn vörunúmer, vöruflokk eða afsláttarflokk. Dálkarnir sem ekki er skráð í eiga að vera tómir. 
Skrá þarf inn afsláttarprósentu
Hægt er að skrá inn dagsetningu sem afsláttartaflan gildir til. Má vera tómt. 
Hægt er að velja hvort breyta megi afslætti. 0 fyrir nei og 1 fyrir já. Má þó vera tómt. 
Hægt er að velja hvort breyta megi einingarverði. 0 fyrir nei og 1 fyrir já. Má þó vera tómt. 



Í viðhengi er Excel skjal sem hægt er að vinna með. Þegar lokið hefur við að vinna með excel skjalið þarf að vista það sem CSV skrá - CSV (Comma delimited) (*.csv).
Haka þarf við "CSV skráin er með dálkafyrirsagnir í fyrstu röð" ef það á við. 
Smella þarf á "Velja skrá" í glugganum fyrir ofan og finna CSV skrána sem lesa á inn. Við það stofnar kerfið afsláttartöflur samkvæmt innlestrarskjalinu. 


    • Related Articles

    • CSV innlestur birgðir

      Til að taka út vöruskrá og bæta og breyta henni og lesa inn aftur þarf að byrja á eftirfarandi. Öll dálkaheiti þurfa að vera á ensku. Í viðhengi er skjal með helstu dálkaheitum á ensku og íslensku. Ef dálkaheitin eru ekki í skjalinu sem er í viðhengi ...
    • CSV Innlestur vöruhópar

      CSV Innlestur vöruhópar Hægt er að lesa inn vöruhópa með CSV innlestri. CSV skráin sem er lesin er inn þarf að hafa dálkinn "ITEMCODE" sem er vörunúmer. Þar eru sett inn vörunúmer sem eiga heima í yfirhópnum sem er valinn. Þegar allar upplýsingar ...
    • CSV innlestur birgðaskráning

      CSV innlestur birgðaskráning Hægt er að lesa inn CSV skrá inn í birgðaskráningu. Skráin er lesin undir: Birgðir > Birgðabreytingar > Birgðaskráning > F5 Valmynd > Stofna birgðadagbók frá CSV-skrá CSV skráin sem lesin er inn þarf að hafa ...
    • CSV innlestur í vöruskrá

      CSV innlestur í vöruskrá 1. Byrja þarf á því að búa til excel skrá með upplýsingum sem lesa á inn í vöruskrána. Öll dálkaheiti þurfa að vera á ensku. Í viðhengi er skjal með helstu dálkaheitum á ensku og íslensku. Ef dálkaheitin eru ekki í skjalinu ...
    • CSV innlestur samningsbundin verð

      CSV innlestur samningsbundin verð Hægt er að lesa inn CSV skrá inn í samningsbundin verð. Skráin er lesin undir: Birgðir > Afsláttarvinnslur > Samningsbundin verð > F5 Valmynd > Lesa inn frá CSV-skrá CSV skráin sem lesin er inn þarf að hafa ...