CSV innlestur sölureikninga
1. Byrja þarf á því að búa til excel skrá með upplýsingum um númer skuldunautar, vörunúmerum, magni o.fl.
2. Þegar allar upplýsingar hafa verið skráðar í excel skjalið þarf að vista skjalið sem CSV skrá.
3. CSV skráin er að lokum lesin inn í dk
Sölureikningar > Vinnslur > Innlestur sölureikninga > CSV innlestur sölureikninga.
Byrja þarf á því að sækja CSV skrána með því að smella á "Veldu slóð".
Haka þarf við "CSV skráin er með dálkafyrirsagnir í fyrstu röð" ef það á við.
Skrá þarf söludagsetningu og sölumann.
Mikilvægt er að haka við þá dálka sem eru í CSV skránni, undir "Röð og virkni dálka", og draga dálkana til svo þeir séu í sömu röð og í CSV skránni.
4. Þegar CSV skráin hefur verið lesin inn stofnast óprentaðir reikningar undir Sölureikningar > Uppflettingar > Óprentaðir reikningar, ef valin var sölutegundin "Sölureikningar".