Búnaðarskilríki frá Auðkenni - Uppsetning inn í dkVistun og í dk bókhaldskerfið

Búnaðarskilríki frá Auðkenni - Uppsetning inn í dkVistun og í dk bókhaldskerfið

Setja búnaðarskilríki upp inn í dkVistun (RDP)

Skilríki sem er sett upp í Current User á client tölvu sést ekki inn í dkVistun.
Því þarf að afrita PFX skrána inn í dkVistun og setja skilríkið upp þar (í Current User inni í vistun).

Forsenda:
  1. Notandi er búinn að flytja búnaðarskilríkið út í PFX skrá samkvæmt leiðbeiningum frá Auðkenni.
  2. Hér er hægt að finna leiðbeiningar:
    1. Þetta er kafli 5: Setja skilríkin á fleiri vélar - Flytja búnaðarskilríkin út í pfx skrá
    2. https://skrar.audkenni.is/leidbeiningar/BunadarskilrikiLeidbeiningar.pdf 

Skref 1 — Afrita PFX skránna inn í dkVistun
  1. Finndu .pfx skrána á tölvunni þinni (þar sem hún var vistuð).
  2. Afritaðu hana inn í dkVistun (copy/paste).
Skref 2 — Setja PFX upp inni í dkVistun
  1. Inni í dkVistun: finndu .pfx skrána.
  2. Tvísmelltu á .pfx skrána → Certificate Import Wizard opnast.
  3. Haltu öllum valmöguleikum sjálfgefnum (default) og smelltu Next (oft 2x). 
  4. Þegar beðið er um lykilorð:
    1. Sláðu inn lykilorðið sem var búið til þegar PFX skráin var útbúin. 
  5. Smelltu Next (oft 2x) og svo Finish. 
Niðurstaða
  1. Eftir þetta ætti skilríkið að vera uppsett í dkVistun ásamt Íslandsrót og milliskilríkinu Fullgilt auðkenni. 
  2. Næsta skref er að tengja skilríkið við notendur
  3. Hægt er að velja um tvo valkosti:
    1. Tengja skilríki við einn notanda
    2. Tengja skilríki fyrir alla notendur fyrirtækisins

Valkostur 1: Tengja skilríki við einn notanda

  1. Opnið dk.
  2. Farið í:
    Almennt → Umsjón → Rafræn skilríki
  3. Skilríkið ætti að birtast í listanum.
  4. Setjið hak í reitinn „Velja“ fyrir framan skilríkið.
  5. Ýtið á F12 – Staðfesta.
  6. Veljið þegar spurt er hvort skilríkið eigi að vera sjálfgefið.

            Skilríkið er nú tengt við þann notanda.

Valkostur 2: Tengja skilríki fyrir alla notendur

Til að gera skilríkið aðgengilegt fyrir alla notendur þarf fyrst að lesa það inn í töflu fyrirtækisins. Þegar því er lokið birtist skilríkið hjá öllum notendum í kerfinu og hver og einn getur þá hakað við það til að virkja það fyrir sig.

Lesa skilríki inn

  1. Skráið ykkur inn sem admin notandi.
  2. Farið í: Almennt → Umsjón → Rafræn skilríki
  3. Ýtið á F5 – Valmynd
  4. Veljið: Lesa hugbúnaðarskilríki inn í töflu
  5. Sláið inn:
    • Auðkenni (t.d. „1“)
    • Lykilorð (valið við uppsetningu skilríkis)
  6. Finnið skilríkið á tölvunni og tvísmellið á það.

            Skilríkið birtist þá í listanum.

Hver notandi þarf að:

  1. Fara í: Almennt → Umsjón → Rafræn skilríki
  2. Setja hak við skilríkið.
  3. Ýta á F12 – Staðfesta.


    • Related Articles

    • Rafræn skilríki í dk – yfirlit yfir tegundir og notkun

      Rafræn skilríki í dk – tegundir og notkun Í dk er hægt að nota mismunandi tegundir rafrænna skilríkja til að tengjast bönkum og öðrum þjónustum. Skilríkin eru notuð annað hvort til auðkenningar (innskráningar) eða rafrænnar undirritunar og sum ...
    • Rafræn skilríki á korti frá Auðkenni - uppsetning í dk

      Leiðbeiningar fyrir rafræn skilríki á Auðkenniskorti í dk bókhaldskerfi Til að geta notað rafræn skilríki á Auðkenniskorti í dk bókhaldskerfi þarf fyrst að vera búið að setja upp bæði Nexus Smart ID og MiniDriver á tölvunni samkvæmt ...
    • dk hugbúnaðarskilríki - Upplýsingar og verð

      dk hugbúnaðarskilríki Viðskiptavinir dk hugbúnaðar sem eru í vistun geta fengið dk hugbúnaðarskilríki. Með skilríkinu er hægt að senda kröfu beint í banka þegar reikningur er uppfærður og minnka þannig vinnu við reikningavinnslu. Það er líka hægt að ...
    • Sambanka vefþjónustur í dk – Yfirlit og uppsetning

      Leiðbeiningar um Sambanka vefþjónustur í dk Sambanka vefþjónustur er leyfisháð eining í dk og er greitt mánaðargjald fyrir hana. Sambanka vefþjónustur er vefþjónustutenging milli banka og dk hugbúnaðar, með þessari tengingu getur dk sent og sótt gögn ...
    • dk hugbúnaðarskilríki - uppsetning og sjálfvirk sending krafna

      Kæri viðskiptavinur, Uppsetningu á dk hugbúnaðarskilríkinu er lokið. Nú eru nokkur atriði til að huga að: 1. Ef sölureikningar eiga að verða að kröfu þegar þeir eru uppfærðir þarf að breyta uppsetningu í sölureikningum: Sölureikningar - uppsetning - ...