Stofna verk
Að stofna verk er gert undir Verk > Verk > INS Ný
Nauðsynlegt er að skrá inn Númer, Verkheiti og Greiðanda (skuldunaut). Aðrar
upplýsingar eru valkvæðar.
Tegund verks getur verið: Tímaverk, Þjónustuverk, Tilboðsverk eða Innanhússverk.
Staða verks getur verið: Ekki hafið, Í vinnslu, Í bið eða Lokið.
Útskuldunarmáti getur verið: Mánaðarlega, Verklok, Óreglulega, Óútskuldað eða
Ábyrgð.
Algengt er að láta kerfið úthluta verknúmerum og er fyrsta verk látið fá t.d.
númerið 1000 og fær þá næsta verk númerið 1001, o.s.frv.
Algengt er að láta innanhúsverk fá lægri númer, t.d. 0001, 0002, o.s.frv. Þannig
að innanhúsverkið "Innheimta" fær númerið 0001, "Fundir" fær númerið 0005, "Sumarfrí" fær númerið 0010, o.s.frv.
Önnur svæði á flipanum Almennt sem rétt er að hugleiða eru Yfirverk,
Verkflokkur, Umsjónarmaður, Áætluð byrjun og Áætluð lok.
Á flipanum Reikningagerð eru svæði sem ákvarða hvernig hreyfingar á verkinu
færast á reikning og ef um tilboðsverk er að ræða þá má t.d. slá inn
tilboðsupphæð eða tengja sölutilboð við verkið.
Ef víddir eru í notkun í fyrirtækinu þá bætist við einn flipi sem heitir Víddir. Á
honum eru sviðin Deild, Verkefni og Viðfangsefni.
Í Deild er skráð hvaða deild ber ábyrgð á verkinu, þ.e. hvaða deild verkið
tilheyrir.
Í Verkefni er skráð hvaða verkefni verkið tilheyrir og í Viðfangsefni er skráð hvaða
viðfangsefni verkið tilheyrir.