Stofna Reglur fyrir styrki
Góðan daginn
Hérna koma leiðbeiningar hvernig stofna eigi reglur fyrir styrki.
Áður en reglur eru stofnaðar er gott að hafa í huga samhengið í kerfinu:
- Sjóðir eru grunnurinn og þeir halda utan um innheimtu/innborganir og hvaða greiðslur teljast með.
- Styrkir eru síðan skilgreindar styrktegundir sem er hægt að sækja um og greiða út.
- Reglur eru notaðar til að stýra styrkveitingu, t.d. með hámarki á upphæð eða fjölda, tímabili og skilyrðum. Reglu er hægt að tengja við styrk (og eftir atvikum sjóð) þannig að kerfið viti hvaða takmarkanir og skilyrði eiga að gilda við afgreiðslu.
Farið er í:
- Félagar > Styrkir > Uppsetning > Reglur
- Ýtt á INS Ný til að stofna nýja Reglu
- Hér fyrir neðan er farið í hvern og einn lið í skráningu á reglu.
Regla (Tegund reglu)
1) Hámarks upphæð á tímabili miðað við umsóknardag
-
Hvað gerir þetta? Setur hámarks krónutölu sem félagi má fá greidda innan tímabils sem miðast við umsóknardag. Lengd tímabils er skilgreind í Afmörkun.
2) Hámarks fjöldi á tímabili miðað við umsóknardag
-
Hvað gerir þetta? Setur hámarks fjölda greiðslna innan tímabils sem miðast við umsóknardag. Lengd tímabils er skilgreind í Afmörkun.
3) Hámarks upphæð á tímabili miðað við ákveðinn dag
- Hvað gerir þetta? Setur hámarksupphæð í krónum fyrir tímabil sem miðast við dagsetningu og lengd tímabils sem skráð er í Afmörkun.
4) Hámarks fjöldi á tímabili miðað við ákveðinn dag
- Hvað gerir þetta? Setur hámarks fjölda greiðslna innan tímabils sem miðast við dagsetningu og lengd tímabils sem skráð er í Afmörkun.
Grunnupphæð (Grunnur upphæðar)
Þetta er “grunnurinn” sem reglan byggir útreikning á. Svo geturðu annaðhvort sett beina upphæð eða látið hana reiknast út frá gögnum (skilagreinum/innborgunum/réttindum).
1) Uppsetjanleg upphæð

2) Upphæð byggð á skilagreinum

- Hvað gerir þetta? Grunnupphæð er reiknuð út frá skilagreinum (t.d. iðgjöldum/greiðslum sem hafa borist samkvæmt skilmálum). Ef grunnupphæð er stillt á Upphæð byggð á skilagreinum þarf líka að fylla út reitinn Hlutfall reglu af grunnupphæð (%) til að skilgreina hvaða hlutfall af grunnupphæðinni er notað.
3) Upphæð byggð á uppsöfnuðum réttindum

Hvað gerir þetta? Grunnupphæð verður byggð á réttindasöfnun (inneign/réttindi sem safnast upp).
-
Hvenær hentar? Þegar félagi “vinnur sér inn” rétt til styrks með tíma/greiðslum og getur svo nýtt uppsafnaða inneign.
Athugið: Þegar þú velur þetta birtast viðbótarsvæði/dálkar eins og:
Sjóður fyrir útreikning réttinda
Afmörkun
Slaki dagsetningar
- Leyfi til að sækja um fyrr - gera betur
Inneign reglu
Inneign safnast saman milli ára
- Hvað gerir þetta? Ónotuð inneign/réttindi færast yfir á næsta ár (í stað þess að detta niður).
- Hvenær hentar? Þegar félagi á að geta safnað upp réttindum ef hann nýtir þau ekki strax.
Árafjöldi inneignar
- Hvað gerir þetta? Stýrir hversu mörg ár inneign má safnast/halda gildi (t.d. 1 ár, 2 ár, 3 ár).
- Dæmi: Árafjöldi = 2 ⇒ inneign getur lifað í allt að 2 ár (eftir því hvernig reglurnar eru útfærðar hjá ykkur).
Skilyrði
1) Ekkert skilyrði

2) Skilyrði háð félagsaldri

- Hvað gerir þetta? Reglan gildir bara ef félagi hefur verið skráður í félagið í tiltekinn tíma.
- Hvernig stillir þú?
- Tímabil aðildar frá: (t.d. 01.01.2025)
- Tímabil aðildar til: (valkvætt, t.d. 31.12.2025)
- Velja þarf svo sjóðinn sem silyrði greiðslu er fyrir.
3) Skilyrði háð greiðslu í sjóð

- Hvað gerir þetta? Krefst þess að félagi hafi greitt í tiltekinn sjóð og að greiðslur falli innan ákveðinna viðmiða.
Hvernig stillir þú?
Velur sjóð (sjóður fyrir skilyrði/greiðslu).
Setur viðmið eins og Sjóðagjöld frá/til (lágmark/hámark).
-
Setur tímabil greiðslna í sjóð (t.d. síðustu 12 mánuðir).
4) Skilyrði háð greiðslu og félagsaldri

5) Skilyrði háð öðrum stillingum á félagsspjaldi

- Hvað gerir þetta? Reglan er háð tilteknum upplýsingum á félagaspjaldi (t.d. flokkun/staða/merkimiði/skráningarflokkum eftir því hvernig félagakerfið hjá ykkur er uppsett).
- Hvenær hentar? Þegar styrkur gildir bara fyrir ákveðinn hóp, t.d. “virkir félagar”, “tiltekinn starfsflokkur”, “réttindaflokkur” o.s.frv.
Færslur
- Í Færslum er hægt að tengja regluna við styrki og sjóð (í línu). Einnig er hægt að tengja regluna við styrk beint á styrktarspjaldinu.
Related Articles
Stofna umsóknir út frá sjóð
Að stofna umsóknir út frá sjóð Til er vinnsla þar sem hægt er að búa til umsókn um styrk út frá sjóð. Þá er hægt að búa til margar umsóknir í einu. Þetta passar sérstaklega vel fyrir Félagsmannasjóð þar sem er greitt út einu sinni á ári og engar ...
Stofna fyrirtæki
Stofna fyrirtæki Að stofna fyrirtæki er gert undir Grunnur > Stofna fyrirtæki Almennar upplýsingar Hér þarf að setja inn "Auðkenni", "Nafn" og "Kennitölu". Aðrar upplýsingar eru valkvæðar. VSK, banki og bókhaldstímabil Hér er sett inn VSK númer, ...
Stofna verk
Stofna verk Að stofna verk er gert undir Verk > Verk > INS Ný Nauðsynlegt er að skrá inn Númer, Verkheiti og Greiðanda (skuldunaut). Aðrar upplýsingar eru valkvæðar. Tegund verks getur verið: Tímaverk, Þjónustuverk, Tilboðsverk eða Innan hússverk. ...
Stofna launþega
Stofna launþega Hægt er að stofna launþega á tvennan hátt: Leið 1 Undir Laun > Aðgerðir>Stofna launþega Eða launþegar > F5 valmynd>stofna launþega Þá færðu hjálparglugga sem leiðir þig gegnum allar helstu upplýsingar sem þarf fyrir uppsetningu ...
Stofna bókhaldslykil
Stofna bókhaldslykil Hægt er að stofna bókhaldslykil með tvennum hætti. Aðferð 1 Fjárhagur > Bókhaldslyklar > INS Ný Athugið að flokkar, tegund og vsk. merking sé rétt fyrir bókhaldslykilinn. Aðferð 2 Stofna nýjan bókhaldslykil með því að afrita ...