Stillingar í dk fyrir EDI sölupantanir og sölureikninga
Stillingar fyrir EDI sölupantanir og sölureikninga
1. Skuldunautar
Haka þarf við á skuldunautaspjaldi viðkomandi skuldunautar að "Senda reikninga á EDI formi" og skrá X400 addressu og EAN kennitölu.
2. Vörumóttakendur
Ef verið er að setja EDI upp fyrir skuldunaut með marga móttökustaði og mismunandi EAN kennitölur, þá er best að setja móttökustaðina upp sem vörumóttakendur. Vörumóttakandi er stofnaður inni á skuldunautnum með þvi að velja F5 Valmynd og Vörumóttakendur haka þarf í nota vörumóttakendur á skuldunaut svo þeir séu notaðir í EDI skeyta sendingum.
Þar fyllið þið út þær upplýsingar sem þið viljið hafa á vörumóttakandanum og setjið síðan EAN kennitöluna hjá viðkomandi móttökustað inn undir Rafræn viðskiptaskjöl.
Mikilvægt er að haka við á skuldunautaspjaldi á flipanum Sala að "nota vörumóttakendur"
3. Sölupantanir
Til að lesa inn í kerfið pantanir sem skuldunautur hefur sent ferð þú í Sölureikningar > Sölupantanir > F5 Valmynd > Lesa inn EDI sölupöntun.
4. Sölureikningar
Til að senda sölureikninga á viðskiptavini ferð þú í Sölureikningar > Sölureikningar > Stofnar sölureikninginn sem þú ætlar að senda > Prentar hann út og þá kemur spurning hvort þú viljir senda hann með EDI.
Hægt er að endursenda sölureikninga með EDI en það er gert með því að fara inn á viðkomandi skuldunaut, Velja F5 valmynd, senda reikning með EDI og haka við þá reikninga sem þú vilt senda.
Related Articles
EDI Stjórnandi
Senda/mótaka EDI Reikninga Stjórnandi Til að EDI skeytasendingar geti átt sér stað þarf að úthluta einum notanda EDI Stjórnanda réttindi. Viðkomandi notandi er ábyrgur fyrir edi skeytum inn og út úr fyrirtækinu Ef stjórnandi er ekki loggaður inn í ...
Staðfestar sölupantanir
Staðfestar sölupantanir er viðbót í leyfi í dk. Það sem staðfestar sölupantanir gera frábrugðið venjulegum sölupöntunum, þær taka magnið sem er í staðfestri sölupöntun út af lager. Venjulegar sölupantanir gera það ekki nema að útbúinn sé ...
Senda sölureikninga í tölvupósti
Senda sölureikninga í tölvupósti Stillingar á skuldunautaspjaldi Fyrst þarf að fara í skuldunautaspald og passa að hafa skráð netfang. Skuldunautar > Skuldunautar > Tvísmellir á skuldunautinn Einnig hafa hakað í "Senda reikn. með tölvupósti" undir ...
Sölupöntun stofnast ekki
Ef sölupöntun stofnast ekki en það verður samt til reikningur án pöntunarnúmers þá þarf að passa að það sé til magn á lager fyrir vörunni á sölureikningnum. Annars afgreiðist ekki sölupöntunin að fullu og fær ekki pöntunarnúmer, helst því ...
dk Memor fyrir Android
dk Memor fyrir Android Sækja nýjar upplýsingar frá dk Sölureikningar > Handtölvur > Memor > Senda gögn til Memor > F12 Staðfesta Fara í handtölvuna og velja Sækja Senda upplýsingar frá handtölvu til dk Sölureikningar > Handtölvur > Memor > Lesa gögn ...