Í viðhengi má sjá template fyrir að sameina og skipta vörunúmerum.
Kerfið velur sjálfkrafa þá vöru sem er valin í vörulistanum sem vöru sem á að sameina í, þegar farið er í F5 valmynd > Viðhald > Sameina/skipta vörunúmeri.
Til að velja hvaða vara á að sameinast inn í þessa vöru þarf að:
Smella á þrjá punkta (…) í dálkinum Vörunúmer sem sameina skal.
Velja viðeigandi vöru.
Smella á Bæta í lista.
Sameiningin er óháð vörutegundum. Allar valdar vörur sameinast inn í vöru sem var upphaflega valin og sú vara hefur yfirráð, þ.e. hún er varan sem stendur eftir.
Hægt er að láta Birgjaupplýsingar og Strikamerki fylgja með í sameiningunni, en þá þarf að setja hak við viðkomandi reiti.
Sameiningin nær einnig til birgðastöðu þegar varan sem sameinað er í er af tegundinni Lagervara. Til dæmis:
Vara A með magn 5
Vara B með magn 3
⇒ Eftir sameiningu verður birgðastaðan 8 á vörunni sem stendur eftir.
Ef varan sem sameinað er í er hins vegar af tegundinni Þjónusta, þá flyst birgðastaða ekki með í sameiningunni.
Önnur atriði haldast samkvæmt vöru A (vörunni sem sameinað er í), t.d. verð og afslættir breytast ekki.
Athugið að kerfið heldur ekki utan um feril sameiningarinnar. Eftir að keyrslan hefur verið framkvæmd er ekki hægt að sjá í kerfinu hvaða vörur voru sameinaðar saman.