Ef fyrirtækið er með sambankavefþjónustu þá er hægt að senda launaseðla með Tegund: Vefþjónustu. Setja þarf inn rétt bankanúmer, launaár og númer þeirrar launakeyrslu sem við á. Setja þarf inn notendanafn og lykilorð og í lokin F12 Staðfesta
Þá þarf að tilgreina hjá bankanum að þú sem þinn notandi hjá þessu fyrirtæki er að fara að senda inn í bankann rafræna launaseðla með þínu skilríki.
Það þarf að tengja skilríkið við bankanotandann sem þú slærð inn þegar þú ert að senda rafrænu launaseðlana.
Þegar F12 Staðfesta hefur verið valið eiga launaseðlirnir að hafa verið sendir nema að einhver villuboð birtist.
Komi upp villa skal lesa hana vel en þegar sent er inn í fyrsta sinn er algengast að notendanafn hafi ekki verið tengt við þessa þjónustu í bankanum.
Þá skal velja í reitinn Tegund:
XML skrá og velja síðan réttan banka, launaár, launakeyrslu
og velja Slóð fyrir launaseðlaskrá. Þessi slóð þarf að vera á
stað sem starfsmenn komast ekki í ef aðrir starfsmenn mega ekki sjá laun allra
starfsmanna. Því er gott að eiga lokað svæði til að vista þessa skrá á. Í þessu
tilfelli hefur verið valið að hafa launamöppu á C drifi tölvunnar. Næst er að
velja F12 Staðfesta og þá verður til skrá á þeim stað/á þeirri
slóð sem valin var. Í kjölfarið þarf að opna fyrirtækjabankann, velja að lesa
inn Rafræn skjöl og velja skrána inn í bankann frá þeim stað sem hún var
stofnuð/vistuð á.