Undir kostnað birtast þær einingar sem fylgja kostnaði, undireiningar sem greiða þar sérstaklega fyrir eru Samþykktir og Innlestur kostnaðarreikninga.

Mínar samþykktir – Hér fer samþykkjandi til að finna þá reikninga sem búið er að merkja á hann til samþykktar. Notandi vinnur í þessum lista til að sjá reikninga og samþykkja/hafna reikningum.
Reikningar – Hér getur notandi fundið alla reikninga sem skráðir hafa verið. Hægt er að notendastýra því hvort allir notendahópar sjái alla reikninga eða ekki.
Lánardrottnar – Hér er hægt að stofna og breyta lánardrottnum, ásamt því að sjá lista yfir alla lánardrottna.
Innlestur skjala – Í apppinu er hægt að taka mynd af skjali og senda beint inn í skrá reikninga í dk lánardrottnakerfið eða í fjárhagsdagbók til að reikningur stofnist með viðhengi. Í vefmiðmóti er hægt að hlaða inn PDF reikningum sem hafa verið sendir með tölvupósti.