Strikamerki í dk One
Það þarf að vera með "Strikamerkjavinnslur" í leyfinu í dk bókhaldskerfinu.
Uppsetning
Stillingar > Sala > Haka í "Virkja strikamerki"
Virkni
Vafrinn
Hægt er að bæta við vöru á sölureikning með því að skanna inn strikamerki.
Hægt er að bæta við kostnað (vöru) á verk með því að skanna inn strikamerki.
Appið
Þegar er bætt við vöru á sölureikning þá er smellt á strikamerki efst á hægra horninu og þá er hægt að skanna inn.
Ef það virkar ekki að skanna þá þarf líklegast að breyta stillingum og opna fyrir í símanum að dk One hafi aðgang að myndavélinni.
Þegar kostnaður er skráður á verk þá er valið "Skrá kostnað" og síðan smellt á strikamerki efst á hægra horninu og þá er hægt að skanna inn kostnað (vörur) á verk.
Athugið "Skanna strikamerki" er fyrir handtölvu með innbyggðum skanna. (Ekki myndavél).
Byrjar síðan að skanna vörurnar. Þegar það er einhver vara komin inn þá er hægt að vista og þá kemur lína í skráninguna.
Magn kemur default 1, en hægt er að breyta því eftir á með því að vista fyrst, smella síðan á vöruna undir kostnaður og breyta magni.