Greiða lánardrottna reikninga

Greiða lánardrottna reikninga

Greiða lánardrottna reikninga

Hægt er að greiða þá reikninga sem bókaðir eru í dk með því að lesa inn skrá í bankann eða með sambanka vefþjónustu.

Sambanka vefþjónustur

Til að greiða lánardrottna reikninga þá það þarf að vera með sambanka vefþjónustur og rafræn skilríki frá Auðkenni, annaðhvort  kort sem er tengt við kortalesara eða búnaðarskilríkjum. 
Næst þarf að fara í Lánardrottnar > Uppsetning > Almennar stillingar > Lánardrottnar - Greiðsla reikninga > Haka í "Nota sambanka vefþjónustur fyrir greiðslur".



Virkni

Farið er í Lánardrottnar > Greiða reikninga > INS Ný og þar opnast val fyrir greiðslu reikninga.



Í greiðslubókinni koma allir þeir reikningar sem eru ógreiddir (ójafnaðir), velja þarf þá reikninga sem greiða á með því að smella á (+) hnappinn og kemur þá upphæðin til greiðslu í dálkinn „Greitt nú“. Ef valinn var rangur reikningur til greiðslu má smella á (-) og þá fer upphæðin út. 



Ef greiða á alla reikningana, þá er hægt að merkja alla reikninga í einu til greiðslu og er það gert í F5 valmynd > Merkja alla reikninga til greiðslu.



Greiðslubókin skoðar hverjar greiðsluupplýsingarnar eru á reikningunum og ef engar greiðsluupplýsingar voru skráðar á reikninginn, þá er hægt að bæta þeim við í greiðslubókina með því að fara í F5 valmynd > Skoða/breyta OCR.



Stofna greiðslubunka með skrá

Farið er í F5 valmynd > Prenta bankaskilagrein, þar þarf að velja gerð bankaskráar en hún fer eftir bönkum. Einnig þarf að velja Slóð og heiti fyrir bankaskránna sem lesa þarf síðan inn í fyrirtækjabankann.



Stofna greiðslubunka með sambanka vefþjónustu

Farið er í F5 Valmynd > Greiða reikninga. Þegar greiðsla hefur verið staðfest er hægt að bóka greiðslurnar, en það er gert í F5 valmynd > Bóka greiðslu






    • Related Articles

    • CSV óvirkja/loka Lánardrottna

      Óvirkja Lánardrottna CSV innlestur Ef þú ert með marga Lánardrottna í dk sem þarf að loka er gott að gera það með CSV innlestri. Það er gert með eftirfarandi skrefum: 1. Setja gögn inn í Excel Þú opnar nýtt Excel skjal og setur þar inn dálkana sem þú ...
    • Greiða laun og launatengd gjöld úr dk

      Greiða laun og launatengd gjöld beint úr dk Til þess að geta greitt laun og launatengd gjöld úr dk þarf að vera með sambanka vefþjónustur í leyfinu. Til þess að bæta því við getur þú sent á hjalp@dk.is Ef þú ert með sambankavefþjónustur í leyfinu þá ...
    • Bókhaldstenging launaliða - Lánardrottnar

      Bókhaldstenging launaliða - Lánardrottnar Til að tengja launalið lánardrottni er farið undir Laun > Launauppsetning > Bókhaldstenging > Launaliður valinn > smella á Enter eða Breyta > Tegund stillt á Lánardrottinn. Þegar launaliðir í launakerfinu eru ...
    • Bóka reikninga úr dkPos

      Bóka reikninga úr dkPos Stillingar á bókun í fjárhag má finna undir Sölureikningar > Uppsetning > Almennar stillingar > Sölureikningar – Bókun í fjárhag > þegar notast er við dkPOS er best að haka við “Eftirá bókun” > Uppsetning > velja hvernig ...
    • Bókunarskilgreining rafrænna reikninga

      Bókunarskilgreining rafrænna reikninga Það eru tvær leiðir til að stýra bókun rafrænna reikninga í kerfinu. Hvaða leið á við fer fyrst og fremst eftir því hvert reikningurinn er bókaður inn (Móttökustaður). Leiðbeiningarnar skiptast í tvennt eftir ...