CSV óvirkja/loka Lánardrottna

CSV óvirkja/loka Lánardrottna

Óvirkja Lánardrottna CSV innlestur
Ef þú ert með marga Lánardrottna í dk sem þarf að loka er gott að gera það með CSV innlestri. 
Það er gert með eftirfarandi skrefum: 

1. Setja gögn inn í Excel 
Þú opnar nýtt Excel skjal og setur þar inn dálkana sem þú ætlar að vinna með.
Gott er að nota dálkana Númer og Lokað. 
Kerfið les fyrirsagnirnar ekki á íslensku og því þarf að gefa dálkunum þessi heiti: Number, Blocked. 
Athugið að Númer er ekki alltaf það sama og kennitala í kerfin

Hér má sjá hvernig uppsetning lítur út. 
Undir Number fer númer lánardrottins og undir Blocked þarf að merkja Yes ef á að loka viðkomandi. 

2. Vista Excel skjalið sem CSV skjal
Það er gert inn í Excel skjalinu, farið er í File - Save as og velja "CSV (Comma delimited)(*.csv)" sem tegund skjals. 

3. Lesa skjalið inn í dk 
Opnaðu dk, farðu í Lánardrottnar - Lánardrottnar - F5 Valmynd - Lesa inn frá CSV skrá 


Þá ætti Lánardrottinn að vera orðinn lokaður.

ATH! Ef þú færð villumeldingu við innlestur CSV skjalsins þá gæti verið að þú þurfir að breyta Region stillingum í tölvunni þinni. 
1. Byrja að fara í Settings - Time & Language 
- Country or region: Þarf að vera Iceland 
- Regional format: Þarf að vera Icelandic

2. Opna Control Panel og velja Region: 
3. Fara þar í Additional Setting og passa að list Seporator sé " ; "

Við gerð svona breytinga þarf oft að endurræsa tölvuna til að þær taki gildi. 

    • Related Articles

    • Óvirkja/Loka Skuldunautum með CSV innlestri

      Óvirkja/Loka Skuldunautum með CSV innlestri Ef þú ert með marga Skuldunauta í dk sem þarf að loka er gott að gera það með CSV innlestri. Það er gert með eftirfarandi skrefum: 1. Setja gögn inn í Excel Þú opnar nýtt Excel skjal og setur þar inn ...
    • Óvirkja félaga CSV innlestur

      Óvirkja félaga CSV innlestur Ef þú ert með marga félaga í félagakerfinu sem þarf að óvirkja er gott að gera það með CSV innlestri. Það er gert með eftirfarandi skrefum: 1. Setja gögn inn í Excel Þú opnar nýtt Excel skjal og setur þar inn dálkana sem ...
    • CSV innlestur samþykkjendur

      CSV innlestur - samþykkjendur Ef þið viljið bæta samþykkjendum á lánardrottna þá er hægt að lesa inn CSV skrá. Velja Lánardrottnar > Lánardrottnar > Hægri smella á töfluna > velja Flytja út í Excel skrá Næst er að eiga við excel skjalið og hafa ...
    • Óvirkja vörur frá ákv.tímabili

      Óvirkja vörur frá ákv tímabili Ath. gott að byrja hér á að taka bara 1 og 1 vörunúmer til að sjá virknina. Þessi vinnsla eins og segir þarna óvirkjar einungis vörur sem hafa ekki birgða né söluhreyfingu fyrir utan viðmiðunardagsetninguna. ATH ef ...
    • CSV innlestur sölureikninga

      CSV innlestur sölureikninga 1. Byrja þarf á því að búa til excel skrá með upplýsingum um númer skuldunautar, vörunúmerum, magni o.fl. 2. Þegar allar upplýsingar hafa verið skráðar í excel skjalið þarf að vista skjalið sem CSV skrá. 3. CSV skráin er ...