Gjaldmiðlar - grunnstillingar
Fjárhagur - Bókhaldslyklar
Þegar gjaldmiðlar eru virkjaðir þarf að fara yfir uppsetningu á bókhaldslyklum.
Rekstrarlyklar:
Á rekstrarlyklum er einungis hakað við að "Nota gjaldmiðil". Það má blanda saman gjaldmiðlum á rekstrarlyklum. Ekki er hakað við að "leyfa gengisleiðréttingu"
Efnahagslyklar:
Á efnahagslyklum viljum við hafa sér bókhaldslykil fyrir hvern gjaldmiðil, t.d. á bókhaldslyklum fyrir banka, lán og þess háttar lykla. Það er hakað við að "nota gjaldmiðil", "fastur gjaldmiðill", "leyfa gengisleiðréttingu" og veljum þann gjaldmiðil sem á að vera fastur á viðeigandi bókhaldslykli.
Safnlykill skuldunauta (7622) og
lánardrottna (9322)
Safnlyklar eru efnahagslyklar, en þeir hegða sér með aðeins öðrum hætti en hefðbundnir efnahagslyklar. Ástæðan fyrir því er að þeir eru safnlyklar fyrir skuldunauta og lánardrottna. Því eru safnlyklar uppsettir eins og rekstrarlyklar, þ.e. einungis er hakað við að "nota gjaldmiðil". Þá má blanda saman gjaldmiðlum á safnlyklum því hver skuldunautur/lánardrottinn ætti að vera uppsettur sérstaklega fyrir hvern gjaldmiðil.
Skuldunautar –
lánardrottnar
Uppsetning á skuldunautum og lánardrottnum ætti að vera eins og á efnahagslyklum. Þar ætti að stofna sér skuldunaut/lánardrottin fyrir hvern gjaldmiðil.
Við mælum aldrei með að blanda saman gjaldmiðlum á skuldunautum/ lánadrottnum og efnahagslyklum (nema safnlyklum).
Það auðveldar allar afstemmingar ef það er sér fyrir hvern gjaldmiðil. Gengismunaútreikningur verður rangur ef gjaldmiðlum er blandað saman.
Búa til bókunarflokk fyrir erlenda skuldunauta
Related Articles
Gengi/gjaldmiðlar skila sér ekki rétt á bókhaldslykil/lánardrottin/skuldunaut
Gjaldmiðlar - Gengi = 1 Ef gengi eða gjaldmiðill skilar sér ekki rétt á bókhaldslykil/lánardrottin/skuldunaut er byrjað á að skoða stillingar. Stillingar eru eftirfarandi: Fjárhagur - safnlyklar (7622, 9322) Banki/Erlend lán ...
Stillingar í dk fyrir EDI sölupantanir og sölureikninga
Stillingar fyrir EDI sölupantanir og sölureikninga 1. Skuldunautar Haka þarf við á skuldunautaspjaldi viðkomandi skuldunautar að "Senda reikninga á EDI formi" og skrá X400 addressu og EAN kennitölu. 2. Vörumóttakendur Ef verið er að setja EDI upp ...
Bókhaldstenging launaliða - Lánardrottnar
Bókhaldstenging launaliða - Lánardrottnar Til að tengja launalið lánardrottni er farið undir Laun > Launauppsetning > Bókhaldstenging > Launaliður valinn > smella á Enter eða Breyta > Tegund stillt á Lánardrottinn. Þegar launaliðir í launakerfinu eru ...
Afstemming skuldunauta
Afstemming skuldunauta Skuldunautar eru jafnaðir undir Skuldunautar > Afstemmingar. Þar er hægt að opna hvern og einn skuldunaut og jafna handvirkt eða vélrænt jafna. Einnig er hægt að vélrænt jafna alla skuldunauta í einu með því að smella á F5 ...
CSV innlestur - Region Stillingar
Til að dk geti lesið CSV-skrá rétt þarf tölva viðkomandi að vera stillt á Region = Iceland og Regional format = Icelandic. Þá mun Excel nota semikommu (;) sem dálkaskil þegar skjalið er vistað sem CSV. Hægt er að sjá þetta með því að opna CSV skránna ...