Geyma sölu
Hægt er að geyma sölu sem búið er að skrá inn í afgreiðslukerfið og
sækja hana svo síðar. Við veljum hnappinn [Geyma sölu] og birtist
þá eftirfarandi mynd
Við getum slegið inn allt að 50
stafa skýringartexta, sem getur
verið gott ef mikið er um að sala
sé geymd (sett í bið).
Til að sækja sölu aftur, veljum við hnappinn [Sækja sölu] og birtist
þá listi fyrir geymdar sölur, velja skal rétta geymslu og ýta á [ENT –
Velja].
Nú er hægt að ganga frá viðkomandi sölu.