Almennt um verkbókhaldið

Almennt um verkbókhaldið

Almennt um verkbókhaldið

Verkkerfið sem er að öllu leyti samtengt öðrum kerfishlutum í dk Viðskipta- og upplýsingakerfinu er notað við stýringu verka. Það fylgist með kostnaði og notkun forða (tímaskráningu starfsfólks) og veitir möguleika á að gera áætlanir fyrir verk og úthluta forða, skrá á þau vinnu, tekjur og annan kostnað.

Grunnur verkkerfisins hefur að geyma verk og dagbækur til að skrá og bóka hreyfingar. Öflugar uppflettivinnslur eru sem auðvelda allar fyrirspurnar- og leitaraðgerðir. Færslur má rekja þangað sem þær enda, í verkkerfið, eða til upprunans í hvaða undirkerfi sem er.

Verk

Í stofnskrá verka má skrá margs konar upplýsingar. Hvert verk er auðkennt með númeri sem getur verið allt að 12 stafa langt, bæði bók- og tölustafir. Almennar upplýsingar fylgja svo sem verkheiti (verklýsingu), yfirverk, greiðandi, verkflokkur, eigandi, umsjónarmaður, starfsmaður, tegund verks, staða verks, útskuldunarmáti, áætluð verkbyrjun og áætluð verklok.

Verkdagbækur

Í verkdagbækur má skrá inn tímavinnu, akstur og kostnað. Tímavinnu er hægt að skrá inn sem heildartíma t.d. 3 klst. eða sem unnið frá og til, þ.e. frá 09:00 til 11:00 og sér kerfið sjálft um að umreikna. Með því að nota frá og til tíma getur starfsmaður skráð sig inn á verk í byrjun og út í lokin. Akstur er hægt að skrá inn sem km eða ferð. Kostnaður er skráður út af lager.

Uppflettingar

Allar uppflettingar og fyrirspurnir eru til fyrirmyndar í verkkerfinu. Haldið er vel utan um allar færslur og hvernig þær urðu til. Almennar uppflettingar eru þannig að skoða má hreyfingar á einstaka verki, starfsmanni, skuldunaut og fleira. Skýrslur í verkkerfinu er að finna aragrúa af skýrslum, bæði stöðluðum og uppsetjanlegum. 

Skýrslur

Í verkkerfinu er undirvinnsla sem heitir Skýrslur. Hún inniheldur allar staðlaðar skýrslur sem nauðsynlegt er að ná út úr verkkerfinu. Allar skýrslur má fá prentaðar á skjá eða prentara.

Verkgreining

Í Verkkerfinu er að finna fjórar greiningarvinnslur. Annars vegar er um að ræða þrjú greiningartré og hins vegar lykiltölugreiningu. Þessar greiningarvinnslur hjálpa til við að sjá yfirlit yfir verkkerfið á samandregnu formi.

Reikningavinnslur

Prenta má út reikninga í verkkerfinu. Það má einnig prenta út fylgiseðla með reikningum sem eru nánari sundurliðun á þeim.
    • Related Articles

    • Verkbókhald - áminning um tímaskráningu

      Verkbókhald - áminning um tímaskráningu Hægt er að stilla í verkbókhaldinu að starfsmenn fái áminningu um skráningu tíma. Uppsetningin er undir Verk > Uppsetning > Almennar stillingar > Verk - Verkdagbók Hægt er að velja um hvort tímar séu áætlaðir ...
    • Stofna verk

      Stofna verk Að stofna verk er gert undir Verk > Verk > INS Ný Nauðsynlegt er að skrá inn Númer, Verkheiti og Greiðanda (skuldunaut). Aðrar upplýsingar eru valkvæðar. Tegund verks getur verið: Tímaverk, Þjónustuverk, Tilboðsverk eða Innan hússverk. ...
    • Afsláttur verk

      Afsláttur verk Hægt er að stilla afslátt á hvert verk fyrir sig. Verk > Verk > Reikningagerð > Afsláttur > F12 skrá Afsláttarprósenta verkkaupa (skráð á skuldunaut) Afsláttarprósenta verks (afsláttur skráður á tiltekið verk) Enginn afsláttur Setja ...
    • Reikningavinnsla - Verkbókhald

      Reikningavinnslur - Verk Til þess að hægt sé að flytja færslur dagbóka á reikninga þarf yfirfara og uppfæra verkdagbækur. Reikningavinnsla stofnuð Verk > Reikningavinnslur> Reikningar > INS ný Verkreikningar útbúnir Verknúmer: Hægt að velja tiltekið ...
    • Verk - endurreikna hreyfingar

      Verk - endurreikna hreyfingar Ef búið er að setja hreyfingar á verk og vörunúmer síðan uppfært þá er hægt að endurreikna hreyfingar á verki með því að fara undir Verk > Uppflettingar > Verk > * fyrir öll verk eða einstaka verk > CTRL+A fyrir allar ...