Sandbox - Leiðbeiningar

Sandbox - Leiðbeiningar

Góðan daginn,

Sandbox er prófunarumhverfi fyrir forritara. Hægt að setja upp vefsíðu og prófa með raungögnum fyrirtækisins, án þess að hafa áhrif á þau.

Samantekt á mögulegum aukakostnaði

  • Greitt er fyrir fjölda fyrirtækja samkvæmt leyfi (hversu mörg fyrirtæki má stofna í dk).

  • Greitt er fyrir aukalegan dkPlus-notanda og það gagnamagn sem er notað.

Skref fyrir skref

1) Stofna Sandbox-fyrirtæki í dk

  1. Farið í Grunnur > Stofna fyrirtæki.

  2. Nefnið fyrirtækið skýrt, t.d. „Sandbox – [Nafn fyrirtækis]“.

Athugið: Ef leyfið ykkar nær ekki yfir aukafyrirtæki gæti þurft að hafa samband við söludeild til að hækka leyfið.


2) Afrita gögn og flytja inn í Sandbox

  1. Farið í Verkfæri > Gagnaflutningur > Fyrirtæki > Flytja út gögn (úr núverandi fyrirtæki).

  2. Farið síðan í Sandbox-fyrirtækið og veljið Verkfæri > Gagnaflutningur > Fyrirtæki > Flytja inn gögn.

  3. Farið inn í Sandbox fyrirtækið, takið út að nota rafræna reikninga og að senda ekki tölvupóst á skuldunauta.


3) Stofna fyrirtækið í dkPlus og bæta við notanda

  1. Fyrirtækið mun stofnast þegar notanda er boðið inn í fyrirtækið.

Þá greiðir fyrirtækið fyrir þennan dkPlus-notanda og það gagnamagn sem notað er.

Valfrjálst: Ef notandinn á ekki að hafa aðgang að öllum gögnum er hægt að setja hann í réttindahóp í dkPlus.


4) Stofna auðkenningartákn (token) og afhenda forritara

  • Stofnið auðkenningartákn (token) fyrir notandann, afritið það og sendið forritara.

Athugið: Þið getið annað hvort:

  • stofnað token sjálf, eða

  • veitt forriturum aðgang að dkPlus svo þeir geti stofnað token sjálfir.


    • Related Articles

    • Leiðbeiningar fyrir dkPlús

      Smellið hér fyrir dkPlus leiðbeiningar.
    • Tengja PowerBI/Excel í gegnum OData- Leiðbeiningar

      Tengja dkPlús gagnaflæði (OData) við Excel Áður en þú byrjar Þú þarft: Netfangið sem þú notar til að skrá þig inn á dkPlús (þetta verður notandanafnið í Excel) Auðkenningartáknið (þetta verður lykilorðið í Excel) 1) Finna notandanafn og ...
    • vMail - Villa við innlestur, endursenda reikning

      vMail - Villa við innlestur, endursenda reikning Það getur komið fyrir að áframsending tölvupósts/sölureiknings inn í DK bókhaldskerfið mistakist. Þá er hægt að skrá sig inn á dkplus.is, fara í Pósthólfið og sjá hvaða reikningur fór í villu, hvað ...
    • Stofna auðkenningar tákn

      Hvað er Auðkenningartákn? Auðkenningartákn (token) er eins konar stafrænn lykill sem er notaður til að tengja aðra þjónustu við gögn fyrirtækisins í dk. Auðkenningartáknið fær sömu réttindi að gögnum í dk og notandinn sem býr það til í dkPlús. Þetta ...
    • dkPlus Stimpilklukka Getting Started

      dkPlús Stimpilklukka Ein af kerfiseiningum í dkPlús er stimpilklukka sem hægt er að nota til að skrá viðveru og hafa yfirsýn Stimpilklukka - dk Plus - dk Leiðbeiningar Stofnun á innstimplunar vef Innstimplun - dk Plus - dk Leiðbeiningar Vef viðmót - ...