Auðkenningartákn (token) er eins konar stafrænn lykill sem er notaður til að tengja aðra þjónustu við gögn fyrirtækisins í dk.
Auðkenningartáknið fær sömu réttindi að gögnum í dk og notandinn sem býr það til í dkPlús.
Þetta þýðir: Ef notandinn hefur takmörkuð réttindi, þá hefur táknið líka takmörkuð réttindi.
Ef á að vera hægt að framkvæma allt, þá er best að notandinn sem stofnar táknið sé stjórnandi (admin) í dkPlús.
Farðu inn á dkPlús https://www.dkplus.is/.
Skráðu þig inn með þínum aðgangi.
Farðu í Valmynd.
Veldu Stillingar.
Neðst í hægra horninu finnurðu svæði sem heitir Auðkenningar tákn.
Í dálknum Lýsing:
Skrifaðu skýra og aðgreinandi lýsingu.
Þetta er mikilvægt ef þú þarft að búa til fleiri tákn seinna, svo auðvelt sé að sjá muninn.
Í næsta dálki (fellilisti / drop-down):
Veldu fyrirtækið sem á að stofna auðkenningartáknið fyrir.
Ýttu á Stofna.
Þá á auðkenningartáknið að birtast í listanum fyrir ofan.
Þar geturðu afritað táknið og sent það til viðkomandi vefþjónustu/kerfis sem á að nota tenginguna.
Geymdu táknið á öruggan hátt og sendu það aðeins til aðila sem á að hafa aðgang.
Tákn virkar eins og “lykilorð” fyrir tengingu.
Ruslatunnu-táknið (rauða ruslatunnan) er notað til að eyða auðkenningartákni.
Þegar tákn er eytt þá hættir það að virka og vefþjónustan/kerfið sem notaði táknið mun ekki lengur geta tengst dk/dkPlús með því.
Graf-táknið (bláa grafið) opnar notkunarsöguna / API yfirlit.
Þar geturðu skoðað:
Hvaða aðgerðir hafa verið framkvæmdar með tákninu (t.d. hvaða gögn hafa verið sótt, breytt eða eytt).
Upplýsingar um hvert kall, t.d. URI, Query, Status (staðakóða), IP address og notkun (bandwidth).