Framtal Rafræn skilríki á korti

Framtal Rafræn skilríki á korti

Rafræn skilríki

Til að geta sent framtöl til Skattsins þarf viðkomandi að vera með rafræn skilríki á Auðkenniskorti frá Auðkenni.
Þann 18. febrúar 2025 voru gerðar breytingar á þjónustu Auðkennis á þá leið að einkaskilríki og starfsskilríki voru sameinuð undir heitinu rafræn skilríki á Auðkenniskorti.

Þegar rafræn skilríki á Auðkenniskorti eru notuð þarf að byrja á því að setja upp Smart ID hugbúnað og sækja Minidriver: 

Þegar uppsetning á fyrrnefndum forritum er lokið er gott að byrja á að staðfesta að allt virki rétt. Það má gera með því að prófa að skrá sig inn á t.d. island.is eða þjónustuvef Skattsins með rafrænum skilríkjunum.

Uppsetning skilríkja - Í framtalinu er hægt að setja upp skilríkin á tvo vegu:

  • Leið A (hver notandi með sín skilríki): Notandinn er sjálfur með skilríki og sendir framtalið beint úr sínu framtali.

  • Leið B (miðlæg sending í póstforriti): Þá er aðeins einn með skilríki (á korti) og skilríkin eru sett upp í póstforritinu. Aðrir notendur senda framtölin sín beint inn í póstforritið og sá sem er með skilríkin sendir þau inn fyrir alla.

Leið A – Skilríki sett upp í framtalinu:

Nú þegar skilríkið er uppsett á tölvunni er hægt að senda það til Skattsins til staðfestingar. Skatturinn þarf að samþykkja skilríkið áður en hægt er að senda framtalið inn.

  1. Farið í Uppsetning > Rafræn skilríki og þar ætti skilríkið að sjást.
  2. Haka þarf í fyrir framan skilríkið og staðfesta með F12.
      

Því næst er farið í:
  1. Uppsetningar > Uppsetning XML skila
      
  1. Velja sendingarmáta
    Hakaðu við þann valkost í Sendingarmöguleikum sem á við:

    1. Ef notandinn á að sjá um að senda inn framtölin skal haka við „Senda beint úr framtalsforriti“.

    2. Aðrir notendur, sem ekki senda sjálfir framtölin inn, velja „Láta póstforrit sjá um sendingar“.

  2. Skrá kennitölu einstaklings (ekki fyrirtækis)
    Í reitnum fyrir kennitölu þarf að skrá kennitölu einstaklingsins sem á Auðkenniskortið.
    Þetta er breyting frá fyrri skilríkjum, ný rafræn skilríki innihalda ekki kennitölu lögaðila, aðeins kennitölu einstaklings.

  3. Sækja skilmála
    Smelltu á Sækja skilmála. Þá opnast gluggi þar sem tengja þarf notandann við Auðkenniskortið.

  4. Skrá upplýsingar um tengilið kortsins
    Fylltu inn upplýsingar einstaklingsins sem heldur utan um skilríkið:

    • Kennitala

    • Tölvupóstfang

    • Símanúmer

    Staðfestu með F12.

  5. Slá inn PIN fyrir rafræna skilríkið
    Þá birtist PIN-gluggi.
    Nýju snjallskilríkin nota tvö PIN-númer:

    • Auðkenningar PIN – 4 stafir

    • Undirritunar PIN – 6 stafir

    Þar sem sendingar úr framtalsforritinu teljast sem rafræn undirritun, á að nota 6 stafa undirritunar PIN-númerið.

  6. Tímalína fyrir fyrsta notanda
    Athugið að ef verið er að skrá notandann í fyrsta sinn hjá Skattinum, getur liðið allt að sólarhringur þar til hægt er að senda framtalið inn.

Að lokum þarf að athuga hvort að útstöðin sé tengd. Valið er að fara í Uppsetningar > athuga uppsetningu á XML skilum > F12 staðfesta og þá fer vinnsla í gang sem þarf að staðfesta með auðkenningu. Þá sést hvað er tengt.

      

Leið B – Skilríki sett upp í póstforritinu:

Opnið framtalið og farið í Rafrænar sendingar > Senda rafrænt, þá opnast póst forritið.
  1. Farið í Uppsetning XML skila > Rafræn skilríki og þar ætti skilríkið að sjást.
  2. Haka þarf í fyrir framan skilríkið og staðfesta með F12.
Því næst er farið í:
  1. Uppsetning XML skila > Uppsetning XML skila
      
  1. Velja sendingarmáta
    Hakaðu við:

    1. Senda beint úr framtalsforriti.

  2. Skrá kennitölu einstaklings (ekki fyrirtækis)
    Í reitnum fyrir kennitölu þarf að skrá kennitölu einstaklingsins sem á Auðkenniskortið.
    Þetta er breyting frá fyrri skilríkjum, ný rafræn skilríki innihalda ekki kennitölu lögaðila, aðeins kennitölu einstaklings.

  3. Sækja skilmála
    Smelltu á Sækja skilmála. Þá opnast gluggi þar sem tengja þarf notandann við Auðkenniskortið.

  4. Skrá upplýsingar um tengilið kortsins
    Fylltu inn upplýsingar einstaklingsins sem heldur utan um skilríkið:

    • Kennitala

    • Tölvupóstfang

    • Símanúmer

    Staðfestu með F12.

  5. Slá inn PIN fyrir rafræna skilríkið
    Þá birtist PIN-gluggi.
    Nýju snjallskilríkin nota tvö PIN-númer:

    • Auðkenningar PIN – 4 stafir

    • Undirritunar PIN – 6 stafir

    Þar sem sendingar úr framtalsforritinu teljast sem rafræn undirritun, á að nota 6 stafa undirritunar PIN-númerið.

  6. Tímalína fyrir fyrsta notanda
    Athugið að ef verið er að skrá notandann í fyrsta sinn hjá Skattinum, getur liðið allt að sólarhringur þar til hægt er að senda framtalið inn.


Aftengja notanda frá fyrri skilríkjum

Framtalið

  1. Fara í Uppsetningar > Uppsetning XML skila.

  2. Setja hak við Engar sendingar.

  3. Smella á Staðfesta.

  4. Nú er hægt að setja upp tengingu við ný skilríki.

Póstforritið - Breyta um útistöð

Ef annar notandi á að sjá um að senda inn framtöl í gegnum póstforritið, þarf núverandi sendandi í póstforritinu að fara inn og aftengja sín skilríki frá póstforritinu. 
Það er gert svona:
  1. Opnið framtalið og farið í Rafrænar sendingar > Senda rafrænt, þá opnast póst forritið.

  2. Fara í Uppsetning XML skila > Uppsetning XML skila.

  3. Setja hak við Engar sendingar.

  4. Smella á Staðfesta.

  5. Nú er hægt að setja upp tengingu við ný skilríki.


    • Related Articles

    • Framtal - Útprentun PDF skrá fyrir Acrobat

      Góðan daginn Í dk Framtali er hægt að búa til PDF með útprentuninni „PDF skrá fyrir Acrobat“. Athugið að í sumum tilvikum getur komið upp villa þegar skráin er opnuð sjálfkrafa eftir vistun, sérstaklega ef PDF-skrár eru stilltar til að opnast ...
    • Reitir 1030 og 1040 á rekstrarblöð 4.11c og 4.14c

      Góðan daginn Ný útgáfa – Framtöl 2026 (dk Hugbúnaður) Komin er ný útgáfa af dk Framtalskerfi – 05.03.2026 – Ný útgáfa | dkFramtal – útgáfa 27.3 RSK411 og RSK414: Virkni hefur verið breytt. Vinsamlegast farið vandlega yfir breytingarnar. 4.11cA er ...
    • Endursetja lykilorð í Framtalinu

      Góðan daginn Til að endursetja lykilorð notanda í Framtalinu þarf stjórnandi (Admin) að: Skrá sig inn. Fara í Notendavinnslur > Notendur. Velja viðkomandi notanda og opna notandaspjaldið. Fara í F5 Valmynd og velja Þurrka út lykilorð. Næst þegar ...