Góðan daginn
Í dk Framtali er hægt að búa til PDF með útprentuninni „PDF skrá fyrir Acrobat“.
Athugið að í sumum tilvikum getur komið upp villa þegar skráin er opnuð sjálfkrafa eftir vistun, sérstaklega ef PDF-skrár eru stilltar til að opnast sjálfgefið í Adobe Acrobat/Reader. Ef PDF-skrár eru í staðinn stilltar til að opnast sjálfgefið í vafra (t.d. Microsoft Edge eða Google Chrome), þá virðist útprentunin almennt ganga eðlilega.
Leið 1 – með hægri-smelli á PDF skrá:
Finnið einhverja PDF skrá á tölvunni (t.d. á Desktop eða í Downloads).
Hægri-smellið á skrána → Open with / Opna með → Choose another app / Velja annað forrit.
Veljið Microsoft Edge eða Google Chrome.
Hakið við Always use this app to open .pdf files / Alltaf nota þetta forrit til að opna .pdf skrár.
Veljið OK.
Leið 2 – í Windows stillingum:
Opnið Settings / Stillingar.
Farið í Apps / Forrit → Default apps / Sjálfgefin forrit.
Leitið að skráartegundinni .pdf.
Veljið Microsoft Edge eða Google Chrome í stað Adobe Acrobat/Reader.
Þetta hefur ekki áhrif á vistun PDF-skrárinnar, heldur aðeins hvaða forrit opnar hana sjálfkrafa eftir að hún er búin til.
Ef þið viljið opna einstaka PDF í öðru forriti er alltaf hægt að hægri-smella á skrána og velja Open with / Opna með.
Ef vandamál eru áfram til staðar má líka nota:
Prenta → velja prentara „Microsoft Print to PDF“ til að búa til PDF.