Til að hægt sé að senda launamiða úr kerfinu þarf að skrá staðgreiðslulykil launa í það. Það má gera í launakerfi eða Fjárhagur > Uppsetning > Almennar stillingar. Staðgreiðslulykillinn er skráður í ”Veflykill”. Staðfest er með F12.

Að búa til launamiða (RSK 2.01) – tvær leiðir
Það eru tvær leiðir til að útbúa launamiða og fer það eftir því hvort tilvísanir hafi verið notaðar á bókaðar færslur í Fjárhag:
Leið 1: Stofna launamiða í Fjárhag
Launamiðar eru útbúnir undir Fjárhagur > vinnslur > RSK miðar > Launamiðar (2.01)
Til að búa til launamiða er valið að smella á F5 valmynd og útbúa launamiða. Þar er bókhaldsárið slegið inn og valið hvernig á að sækja færslur. Summa kredithreyfinga þýðir að allar kredithreyfingar á bókhaldslyklinum með tilvísun eru sóttar og fara á launamiða. Valið er staðfest með F12.
Velja Fjárhagur > vinnslur > RSK miðar > Launamiðar (2.01) > F5 valmynd > senda almannaheillamiða rafrænt til RSK, velja launaár og F12 staðfesta. Hægt er að villuprófa miðana fyrir sendingu. Athuga þarf að ef ekkert er athugavert í villuprófun kemur í lokin að skráin hafi verið send. Svo er ekki. Það þarf að velja F5 aftur og „Senda“ . Í „Staða skila“ og „Heildarskil“ er hægt að sjá hvort búið er að skila launamiðum, hve margar sendingar hafa farið út, hvenær miðar voru sendir út og hve margar færslur eru í skránni.
Leið 2: Stofna launamiða í Félagar (ef tilvísanir eru ekki notaðar)
Farið er í:
Félagar > Vinnslur > Launamiðar (RSK 2.01)
-
Veljið F5 Valmynd > Útbúa launamiða.
-
Setjið inn almanaksárið.

Þá fer vinnsla í gang sem stofnar launamiðana.