Í einhverjum tilvikum hentar betur að handbóka gengismun í stað þess að nota gengismunaútreikning dk. Til að handbóka gengismun er byrjað á að stofna dagbók og merkja hana sem gengismunadagbók.
Fjárhagur > Dagbók > INS > Setja "Tegund" dagbókar sem "Gengismunur"
Þá er komið að því að bóka. Upphæðin sem er slegin inn á skuldunaut/lánardrottin/bankareikning/lán, þ.e.a.s. reikningurinn sem er með gengismun, á að vera upphæð gengismunar en gjaldmiðillinn á að vera erlenda myntin.
Dæmi: ISK er grunngjaldmiðill (gjaldmiðillinn sem félagið starfar í), erl mynt er t.d. USD og gengismunurinn er ISK 10 gengistap. Við ætlum að skrá gengismun fyrir skuldunaut. Þá er upphæðin 10 skráð á skuldunautinn í kredit og sama upphæð á gengismunarreikning í debit. Það á ekki að slá inn eða breyta genginu.
Í dæminu hér að neðan er grunngjaldmiðill félagsins EUR og gengismunurinn 32 EUR. Við ætlum að skrá gengismun fyrir bankareikning sem er færður í erlendri mynt sem í þessu tilviki er ISK. Við setjum því 32 á bankareikninginn þó hann sé ISK. Mótbókunin fer svo á gengismunalykilinn. Það á ekki að slá inn eða breyta gengi hér.
Hér sjáum við ekki hvort niðurstaðan er rétt með því að nota Ctrl-T inni í dagbókinni. Það þarf að uppfæra dagbókina fyrst.