Gistináttagjald

Gistináttagjald

Gistináttagjald

Í birgðakerfi dk eru sérstakar uppsetningar fyrir útreikning á gistináttaskatti.

  1. Byrjað er að fara í Fjárhag - Bókhaldslyklar og að gera nýjan bókhaldslykil sem safnar upp gistináttaskattinum.

  2. Því næst er gerður sölubókunarflokkur undir Birgðir - Uppsetning - Sölubókunarflokkar sem vísar á þennan bókhaldslykil.

  3. Næsta skref er síðan að gera sérstaka vöru (Birgðir - Vörur) sem heitir gistináttagjald. Gæta þarf að því að Tegund vöru sé Gistináttagjald.

  4. Þessi vara verður að vera tengd þessum nýja sölubókunarflokk.  Það er gert undir flipanum " Sala ".  Þar er Vsk flokkur U3 og sölubókunarflokkurinn sem þú bjóst til.
     
    Athugið að ekki má leyfa að gefa afslátt af gistináttagjaldinu.



Síðan er sett inn Verð , ekki nauðsynlegt að setja bæði með vsk og án. dk reiknar sjálfkrafa   -  verð án vsk 600 og með 666

Vörurnar fyrir gistingu þurfa síðan að vera merktar í Tegund vöru sem Hótelgisting og svo er varan fyrir gistináttaskatt tengd sem aukavara við gistinguna.  Á vöruspjaldinu er Aukagjald og þar er varan fyrir gistináttaskatt sett inn, sjá á mynd hér fyrir neðan. 


Ef þið sjáið ekki "Gistináttagjald" þá á eftir að bæta því í leyfið að kostnaðarlausu. Endilega hafið samband við ráðgjafadeild ef svo er og við bætum því við í leyfið. 

Athugið að ef gistináttaskattur hefur áður verið settur upp í kerfinu að þá er hægt að nota þá uppsetningu áfram.  Mögulega hefur varan fyrir gistináttaskatt verið óvirkjuð, en þá er hægt að virkja vöruna aftur með því að sýna lokaðar vörur, finna vöruna, opna hana og taka hakið úr "óvirk og vista með F12.  Þá er hægt að setja vöruna aftur á önnur vörunúmer fyrir gistingu sem vörunúmer aukagjalds ef það vantar þar.

Bendum einnig á að gott er að fara yfir allar stillingar á vörunni, að bókhaldslykill og sölubókunarflokkur sé réttur svo að bókun í fjárhag skili sér rétt.

    • Related Articles

    • CSV innlestur birgðir

      Til að taka út vöruskrá og bæta og breyta henni og lesa inn aftur þarf að byrja á eftirfarandi. Öll dálkaheiti þurfa að vera á ensku. Í viðhengi er skjal með helstu dálkaheitum á ensku og íslensku. Ef dálkaheitin eru ekki í skjalinu sem er í viðhengi ...
    • Birgðir leitarnúmer

      Leitarnúmer yfirskrifar ekki vörunúmer. Leitarnúmer er textabox/textasvæði, frjáls texti sem ft.i geta notað til þess að aðgreina "svipaðar vörur" eins og samheitavörur eða vara sem er aðalvara og svo svipuð vara en frá öðrum framleiðanda. Tökum ...
    • Óvirkja vöru

      Óvirkja vöru Til að óvirkja vöru þá er farið í Birgðir > Vörur > Tvísmellir á vöruna > Hakar við "Óvirk vara" > F12 Staðfesta Hér er leiðbeiningar myndband: dk hugbúnaður | Óvirkja vöru
    • Skrá magn inn á lager á eina vöru í einu

      Skrá magn inn á lager Hægt er að skrá magn á lager á eina vöru í einu með því að fara í Birgðir > Vörur > Hafa vöruna valda > F9 / eða F5 Valmynd > Skrá magn inn á lager. Annars er lager magn skráð inn undir Birgðir > Birgðabreytingar > ...
    • Virkja óvirkar vörur aftur með CSV skrá (margar vörur í einu)

      Virkja óvirkar vörur aftur með CSV skrá (margar vörur í einu) Ef þú lendir í að óvirkja margar vörur, er hægt að taka vöruskrá út í CSV og velja "einungis það sem breyst hefur", lesa skránna svo aftur inn í vöruskrá. Skref 1: Birgðir → Vörur → F5 ...