Dráttarvextir á kröfum
Dráttarvextir á innheimtukröfum ráðast af stillingum sem tengjast Auðkenni hjá bankanum. Í bankanum sjálfum er skilgreint hvort og hvernig dráttarvextir eru reiknaðir, þ.m.t. hvaða vaxtaprósenta gildir og frá hvaða tíma þeir byrja að reiknast. Bókhaldskerfið sendir kröfurnar með þessu auðkenni og bankinn sér síðan um að reikna vextina samkvæmt sínum reglum.
Stillingar í kerfinu
Til þess að bankinn reikni dráttarvexti þarf að tryggja að réttar stillingar séu í bókhaldskerfinu:
Fara í:
Skuldunautar > Innheimtukerfi banka > Uppsetning