Villa: Kröfusnið XXX er ekki til

Villa: Kröfusnið XXX er ekki til

Góðan daginn

Villan Kröfusnið XXX er ekki til  bendir til þess að það kröfusnið (auðkenni) sem verið er að senda með kröfum til bankans sé ekki til eða sé ekki rétt skráð.

Kröfusnið er auðkenni bankareiknings sem er útvegað af bankanum sjálfum og notað þegar kröfur eru sendar í innheimtu.

Orsakir villunnar geta verið:

  • Kröfusniðið er ekki til hjá bankanum
  • Rangur banki er skráður í kerfinu (rétt auðkenni en sent á rangan banka)

Hvað þarf að gera:

  1. Fara fyrst í heimabanka fyrirtækisins og staðfesta að rétt auðkenni (kröfusnið) sé í notkun
  2. Þegar það liggur fyrir, fara í bókhaldskerfið og ganga úr skugga um að bæði:
    • rétt kröfusnið sé skráð
    • réttur banki sé tengdur við það
  3. Eftir að leiðréttingar hafa verið gerðar þarf að:
    • fella kröfurnar
    • stofna þær aftur 

Kröfusnið / auðkenni er hægt að skrá á tvo vegu í kerfinu:

Leið 1 – Eitt kröfusnið notað:

  • Fara í:
    Skuldunautar > Innheimtukerfi banka > Uppsetning
  • Opna flipa 2: Banki
  • Staðfesta:
    • Banka
    • Auðkenni (má slá handvirkt inn í dálkinn Auðkenni)

            

Leið 2 – Fleiri en eitt kröfusnið notað:
  • Fara í:
    Skuldunautar > Innheimtukerfi banka > Auðkenni skuldunauta
  • Velja viðeigandi auðkenni
  • Staðfesta að:
    • réttur banki sé tengdur við það auðkenni 
            
    • Related Articles

    • Villa: Slóðin xxx er ekki til. Sjá uppsetningu fyrir innheimtukerfi.

      Hvað þýðir þessi villa? Villan Slóðin xxxx er ekki til þýðir að kerfið finnur ekki slóðina sem á að nota, eða að notandinn hefur ekki aðgang að henni. Þess vegna getur kerfið ekki lokið aðgerðinni. Af hverju gerist þetta? Þegar kröfur eru stofnaðar ...
    • Villa: 1006, Reikningur ekki til - Sækja bankahreyfingar

      Sækja bankahreyfingar - Villa 1006, Reikningur ekki til Ef eftirfarandi villumelding kemur upp við innlestur bankahreyfinga þá þarf að athuga hvort bankareikningur sé rétt uppsettur. Skoða þarf því uppsetningu bankareikningsins undir Fjárhagur > ...
    • Ekki er til sölubókunarflokkur - Villa

      Sölubókunarflokkur - Villa Ef þið fáið sambærilega villu þegar er verið að bóka reikninga eða söludagbók þá þarf að stofna nýjan sölubókunarflokk og tengja við bókunarfl. skuldunauta. Birgðir > Uppsetning > Sölubókunarflokkar > Hefur flokkinn valinn ...
    • Gat ekki búið til skráarsvæði <xxxx> fyrir viðhengi í rafrænu viðskiptaskjali

      Góðan daginn Þegar verið er að stofna reikning í óstaðfestum rafrænum reikningum og villan birtist: „Gat ekki búið til skráarsvæði <xxxx> fyrir viðhengi í rafrænu viðskiptaskjali.“ þá er ástæðan yfirleitt sú að notandinn hefur ekki aðgang að því ...
    • Gat ekki búið til skráarsvæði <xxxx> fyrir viðhengi í rafrænu viðskiptaskjali

      Góðan daginn Þegar verið er að stofna reikning í óstaðfestum rafrænum reikningum og villan birtist: „Gat ekki búið til skráarsvæði <xxxx> fyrir viðhengi í rafrænu viðskiptaskjali.“ þá er ástæðan yfirleitt sú að notandinn hefur ekki aðgang að því ...