Breyta lífeyrissjóði launþega - Almenni-Lífsverk lífeyrissjóður
Þeir launþegar sem hafa greitt í Lífeyrissjóð Verkfræðinga (820 og 821) eiga nú að greiða í Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðinn (4 og 5).
Mikilvægt er að fara yfir uppsetningu Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins vegna þessarar breytingar.
Þetta er gert með eftirfarandi skrefum:
1. Skoða uppsetningu Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins
Farið er í Laun - Launauppsetning - Lífeyrissjóðir.
Almenni-Lífsverk lífeyrissjóðurinn er númer 5 og er séreign hans númer 4.
- Byrjum á að skoða uppsetningu Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins (5).
- Dálkurinn „Lífeyrissjóður“ verður alltaf að vera með sama númeri og lífeyrissjóðurinn er skráður með í kerfinu.
- Dálkurinn „Númer“ má hins vegar vera hvaða númer sem er og hefur ekki áhrif á þetta.
- Það er mjög mikilvægt að lífeyrissjóðurinn sé númer 5, engin formerki mega vera á undan. Númerið má hins vegar hafa formerki.
- Sjá mynd:
Þarna þarf einnig að ganga úr skugga um að launaliðirnir og prósenturnar séu réttar.
Það gæti verið að það vanti Endurhæfingarsjóðinn í launaliðina, ef svo er þá er honum bætt við.
Sjá mynd:
Því næst skoðum við séreign Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins (4). Aftur er mjög mikilvægt að lífeyrissjóðurinn sé númer 4, engin formerki mega vera á undan. Númerið má hins vegar hafa formerki. Sjá mynd.
Hér þarf aftur að ganga úr skugga um að uppsetningin sé rétt.
2. Uppfæra rafræna innheimtuaðila
Farið er í Laun - Uppsetning - Rafrænir innheimtuaðilar
F5 Valmynd - Uppfæra innheimtuaðila
Þetta er gert til þess að tryggja að upplýsingar fyrir skil séu réttar.
3. Uppfæra lífeyrissjóð launþega
Farið er í Laun - Launþegar og sá launþegi valinn sem þarf að breyta. Gott er að bæta við dálkum í töfluna til að auðvelda yfirsýnina. Það er gert með því að smella hvar sem er í töflunni, hægri smella og ýta á "Sýna dálka".
Þar eru svo dálkarnir fyrir lífeyrissjóði valdir og ýtt á "Áfram".
Sjá mynd:
Nú erum við með auðvelda yfirsýn til að finna þá launþega sem greiða í Lífeyrissjóð verkfræðinga.
Næst veljum við þennan launþega, ýtum á Ctrl-t og fáum upp myndina hér að neðan.
Þarna finnum við "Lífeyrissjóðir" og opnum þar, hægri smellum á línurnar og veljum að "Taka úr lífeyrissjóð".
Þegar búið er að taka út bæði 820 og 821 þá hægri smellum við á "Lífeyrissjóðir" og veljum að "Setja í lífeyrissjóð".
Þegar þessu er lokið getum við þá breytt uppsetningu næsta launþega (ef við á).
ATH! Ef þú færð þessa villu:
Ef þú færð þessa villu upp við að skila til Almenna-Lífsverk þá er líklegasta skýringin að formerki séu fyrir framan í dálkinum lífeyrissjóður í uppsetningu sjóðsins. Það virkar ekki, dk býr þessi formerki til fyrir þig.
Almenni-Lífsverk lífeyrissjóðurinn er til í grunn kerfinu okkar með númerinu 4 og 5 og því þarft þú að endurtaka skrefin hér að ofan.
Ef lífeyrissjóðurinn er rétt upp settur, skal prófa að uppfæra rafræna innheimtuaðila aftur (sjá skref 2)