Gjalddagi og eindagi krafna vegna skilagreina

Gjalddagi og eindagi krafna vegna skilagreina

Gjalddagi og eindagi krafna vegna skilagreina

Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar um hvernig þú getur stillt í kerfinu hvaða gjalddagi og eindagi fari á kröfur sem stofnast fyrir skilagreinar.

  1. Gjalddagi.
  2. Eindagi reiknast sjálfkrafa út frá greiðsluskilmálum sem eru skráðir á viðkomandi skuldunaut (t.d. D20 = 20 dagar).
    1. Ef engir greiðsluskilmálar eru skráðir á skuldunaut, þá verður eindagi sá sami og gjalddagi.

Leið 1 — Fastur gjalddagi samkvæmt almennri reglu (sjálfvirkt).

Þú getur skilgreint almenna reglu sem gildir þegar kerfið er stillt til að stofna kröfur sjálfkrafa við uppfærslu skilagreina.

Farðu í Uppsetningu skilagreina og opnaðu flipann Bókun skilagreina. Þar geturðu stillt að gjalddagi kröfu sé X dögum eftir lokadagsetningu skilagreinar. Ef reiturinn er skilinn eftir auður (0 dagar), þá verður gjalddagi kröfunnar sjálfkrafa lokadagsetning skilagreinarinnar.

Stillingin er undir: 

  1. Félagar > Uppsetning > Bókun skilagreina

            

Leið 2 — Handvirk stofnun krafna (þegar gjalddagi er breytilegur)

Ef þið viljið sjálf ráða gjalddaga í hvert skipti (t.d. gjalddagi breytist eftir mánuðum, samningum eða aðstæðum), þá er best að láta kerfið ekki stofna kröfur sjálfkrafa og stofna þær handvirkt.

Farið er í:
  1. Skuldunautar > Innheimtukerfi banka > Stofna innheimtukröfur
Passa þarf að taka hakið úr: Stofna kröfu við uppfærslu skilagreina. Þannig getið þið stýrt því hvenær kröfur eru stofnaðar og sendar til skuldunauta.

            



        
    • Related Articles

    • Ósendar skilagreinar: Almenni-Lífsverk

      Ósendar skilagreinar: Almenni-Lífsverk Ef þú færð upp eftirfarandi villu: Þá gæti þurft að uppfæra rafræna innheimtuaðila. Það er gert í Laun - Uppsetning - Rafrænir innheimtuaðilar - F5 Valmynd - Uppfæra innheimtuaðila. Ef það virkar enn ekki að ...
    • Bakfærsla skilagreina - Félagakerfi

      Bakfærsla skilagreina Skilagreinar undir Félagar > Sjóðir > Uppflettingar > Uppfærðar skilagreinar Fara í uppfærðar skilagreinar. Opna skilagreinina sem á að bakfæra F5 Valmynd > Bakfæra Ef ekki þarf að laga skilagrein þá er valið "Bakfæra" - Þá ...
    • Launþegi 16 ára og yngri

      Launþegi - 16 ára og yngri Launþegi stofnaður eins og venjulega dk notar kennitölu launþega sem viðmið Enginn persónuafsláttur Frítekjumark 180.000 6% staðgreiðsla eftir að frítekjumarki hefur verið náð Greiða ekki í lífeyrissjóð né stéttarfélag
    • dk hugbúnaðarskilríki - uppsetning og sjálfvirk sending krafna

      Kæri viðskiptavinur, Uppsetningu á dk hugbúnaðarskilríkinu er lokið. Nú eru nokkur atriði til að huga að: 1. Ef sölureikningar eiga að verða að kröfu þegar þeir eru uppfærðir þarf að breyta uppsetningu í sölureikningum: Sölureikningar - uppsetning - ...
    • Lykilorð rafrænna innheimtuaðila

      Lykilorð rafrænna innheimtuaðila Notandanafnið og lykilorðið fyrir rafræna innheimtuaðilann er skráð undir Laun > Uppsetning > Rafrænir innheimtuaðilar > Tvísmellir á rafræna innheimtuaðilann sem um ræðir > Skrá þar notandanafnið og lykilorðið > F12 ...