Virðisaukaskattsuppgjör

Virðisaukaskattsuppgjör

Virðisaukaskattsuppgjör

Þegar rafræn virðisaukaskattsskýrsla er send úr dk verður til virðisaukaskattsuppgjörsdagbók sem inniheldur allar færslur á bak við virðisaukaskattsskýrslu tímabilsins. Þessa dagbók þarf að uppfæra og þá núllast virðisaukaskattsbókhaldslyklarnir. Ef bókað er inn á virðisaukaskattstímabil eftir að búið er að gera uppgjörsfærslu verður staða lyklanna augljóslega ekki á núlli lengur. Þær stöður bókast ekki sjálfkrafa á uppgjörslykilinn heldur þarf að fara í Fjárhagur > Virðisaukaskattur > Bókun virðisaukaskattsuppgjörs og gera nýja uppgjörsvinnslu. Það er gott að gera þessa vinnslu fyrir öll virðisaukaskattstímabil ársins þegar það er gert upp. Ef uppgjör er handbókað í almennri fjárhagsdagbók kemur kerfið ekki til með að skilja að um uppgjör er að ræða og tekur færslurnar sem venjulega færslu. En þær merkjast ekki sem virðisauki og því mun koma villuboð um að inn/útskattur sé ekki í samræmi við veltu.
    • Related Articles

    • Virðiaukaskattur - breyting úr ársskilum í tveggja mánaða skil

      Þegar fyrirtæki fer yfir tekjumörk og færist yfir í tveggja mánaðaskil þarf að skila vsk.skýrslu fyrir tímabilið fram að því að breytingin yfir í tveggja mánaðaskil á sér stað handvirkt á síðu Skattsins. Síðan þarf að gera virðisaukaskattsuppgjör ...
    • Mismunur á virðisaukaskattsskýrslu - handfærður virðisaukaskattur

      Mismunur á virðisaukaskattsskýrslu - handfærður virðisaukaskattur Ef mismunur er á samanburðarskýrslu dk og reit E á virðisaukaskattsskýrslunni er best að byrja á að skoða hvort um handfærðan virðisauka sé að ræða. Handfærður virðisaukaskattur er ...
    • Tóm rafræn VSK skýrsla

      Tóm rafræn VSK skýrsla Ef rafræna vsk skýrslan kemur svona upp, og búið er að bóka á vsk lykla yfir tímabilið, þá þarf að skoða eftirfarandi atriði: Er rétt vsk númer skráð undir Almennt > Fyrirtæki > Bank/VAT? Ef ekki, skrá rétt vsk númer og prófa ...
    • VSK - Blönduð starfsemi og nýtingarhlutfall

      Ef fyrirtæki er með blandaða starfsemi og má bara nýta ákveðið hlutfall af virðisaukaskatti þá þarf að haka við það í stillingum Farið er í: Fjárhagur>Virðisaukaskattur>Uppsetning Flipinn "Blönduð starfsemi" og haka við "Blönduð starfsemi Svo er ...
    • VSK skýrsla niður á fjárhagslykla

      VSK skýrsla niður á fjárhagslykla Að taka út VSK skýrslu niður á fjárhagslykla er gert undir Fjárhagur > Virðisaukaskattur > Aðrar skýrslur > Hreyfingar Hakar við "Færslulisti bókhaldslykla" og ferð síðan í afmörkun flipann og velur tímabilið og ...