Stofna notanda
Til að stofna notanda þarf að skrá sig inn sem admin.
Almennt > Umsjón > Notendur > INS Ný
Í fyrsta flipanum "Almennar upplýsingar" eru settar inn almennar upplýsingar notanda.
Notandi: Nafn, auðkenni. Notandi er slegið inn þegar starfsmaður skráir sig inn í dk.
Starfsmaður: Sótt úr starfsmannatöflunni.
Nafn notanda: Upplýsingar sem birtast annarsstaðar í dk. Þarf ekki að vera sama og notandi.
Lykilorð: Ef notandinn á að nota lykilorð við innskráningu í dk er það sett inn hér. Ef ekkert er sett inn þarf ekki að nota lykilorð þegar
notandi skráir sig inn í kerfið.
Stutt nafn: Upplýsingar sem notaðar eru í kerfinu.
Kerfisvalmynd: Sú valmynd sem notandi á að hafa aðgang að.
Tungumál: Hafi dk verið sett upp til notkunar á t.d. ensku er hægt að velja tungumál hérna og
valmyndir koma á ensku.
Sýna velkomin mynd: Ef hakað er hérna birtist kynningagluggi í fyrsta sinn sem notandi skráir sig inn
í dk.
Lokaður: Ef hakað er hérna er aðgangur að kerfinu lokaður fyrir viðkomandi
notanda.
Í flipanum Réttindi er hakað við það sem notandinn má, eða má ekki, gera.
Hefur Admin réttindi: Notandi má gera sumt af því sem kerfisstjóri má gera.
Fastsettur sölumaður: Notandi skráist sjálfkrafa sem sölumaður á þá reikninga sem hann gerir.
Lokað á kerfisvalrönd: Notandi getur ekki notað valröndina efst á skjánum.
Lokað á upplýsingatré: Notandi getur ekki skoðað upplýsingatré.
Engar kostnaðarverðs upplýsingar: Notandi getur ekki séð upplýsingar um kostnaðarverð vöru.
Má breyta framlegð í sölu: Notandi getur unnið með framlegðarupplýsingar við gerð sölureiknings.
Loka á afslátt í sölu: Notandi getur ekki gefið afslátt á sölureikningi.
Loka á einingaverð í sölu: Notandi getur ekki breytt einingaverði á sölureikningi.
Loka á verðflokk í sölu: Notandi getur ekki breytt verðflokki (Verð1..) á sölureikningi.
Loka á VSK breytingu í sölu: Notandi getur ekki breytt virðisaukaskattsflokki á sölureikningi.
Gæðastjóri: Notandi er gæðastjóri.
Í glugganum "Tilkynningar" er hakað ef viðkomandi notandi á að fá tilkynningu um EDI tollsvar.
Í flipanum "Stimpilklukka" er tenging við dk stimpilklukku.
Í flipanum "Tölvupóstur" eru settar inn upplýsingar um tölvupóst viðkomandi notanda.